Viðræður í varnarmálum.
Frú forseti. Við skulum nota þessar mínútur á hinu háa Alþingi til að festa okkur í minni þá mynd sem við blasir. Hér sitja forustumenn ríkisstjórnarinnar, hæstv. ráðherrar, forsætisráðherra og utanríkisráðherra, og þegja þunnu hljóði. Það má vera að það sé úthugsuð taktík þennan morguninn í varnarviðræðum við Bandaríkjastjórn. Það má vel vera að þar að baki liggi djúp pólitísk hugsun. Ég held, frú forseti, að hún lýsi miklu frekar því að þessir ágætu menn, hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra, hafa einfaldlega ekkert um málið að segja. Þeir hafa ekkert um málið að segja vegna þess að þeir eru að bíða eftir símtali frá Bandaríkjunum þar sem lagðar verða línurnar um framtíðina. Þeir eru að bíða eftir símtali frá Bandaríkjunum þar sem lagðar verða línurnar um framtíðina og þeir ætla síðan að segja já, fínt, takk, við skulum nota þetta. — Eða hvað? Um leið og þeir stíga út fyrir þröskuld þessa húss þá stendur ekki á þeim að halda lærða fyrirlestra við háskólann um öryggis- og varnarmál og framtíðina væntanlega eða tala bæði í austur og vestur samtímis um hvert skuli haldið í þessu máli. Hæstv. utanríkisráðherra í vestur og hæstv. forsætisráðherra í austur ef einhver skyldi efast um hvor stefnir hvert.
Mér þykir þessi uppákoma hér lýsa því að þessir ágætu menn hafa einfaldlega ekkert til málanna að leggja.