132. löggjafarþing — 103. fundur,  11. apr. 2006.

Tóbaksvarnalög.

[12:20]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Ég ætla að taka hér til umræðu um störf þingsins mál sem skiptir mjög miklu en það er að Hæstiréttur dæmdi síðastliðinn fimmtudag ákvæði í tóbaksvarnalögum ógild. Í dómsorði segir svo:

„Verður að leggja til grundvallar niðurstöðu að með algjöru banni 6. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 við að sýna tóbak á sölustöðum hafi löggjafinn farið út fyrir þau mörk, sem 75. gr. og 73. gr. stjórnarskrár setja,“ — þ.e. frelsi til atvinnu og frelsi til tjáningar.

Það þarf sem sagt að breyta lögum. Þegar Hæstiréttur fer svona í hlutverk stjórnlagadómstóls finnst mér reyndar, og hef sagt það áður, að hann eigi að vera fullskipaður, þ.e. sjö, en þeir voru fimm hæstaréttardómarar sem felldu þennan dóm. Ég tel ástæðu til að ræða þetta hér í Alþingi, ekki síður en aðra dóma þar sem Hæstiréttur hefur kveðið upp úr um að lög frá Alþingi standist ekki stjórnarskrá, eins og dóma um öryrkja og kvótadóma.

Ég vil líka segja í þessu sambandi að umræða um tóbaksvarnir er með ólíkindum. Mér finnst hún mjög einkennileg. Nú er ég ekki reykingamaður sjálfur en mér ofbýður oft einstrengingsleg og kreddukennd umræðan sem minnir allt að því á trúboð. Það má t.d. ekki nefna tóbakstegundir í opinberri umræðu. Ég má ekki segja Camel eða ég veit ekki hvað þetta heitir allt, af því að ég er ekki reykingamaður. Þetta er alveg með ólíkindum. Ég má ekki segja að afi gamli hafi reykt þessa og hina tóbakstegundina. Ég má það ekki. Hvað er eiginlega að gerast? Það má ekki sýna fullorðnu fólki tóbak. Forsjárhyggjan er alveg með ólíkindum.

Þannig að ég vil vekja athygli á að hér hefur Hæstiréttur komist að því að Alþingi hafi sett lög sem eru í blóra við stjórnarskrána.