Kjararáð.
Frú forseti. Ég hef beitt mér fyrir því að samið væri frumvarp um þetta mál og lagt það fyrir forsætisnefnd þingsins. Ég og minn flokkur erum tilbúin að standa að slíku frumvarpi ef um það næst þverpólitísk samstaða. Sú samstaða hefur ekki náðst. Það er þingsins að flytja slíkt mál, þingið lagði til að eftirlaunalögunum yrði breytt. Ef samstaða næst um það í forsætisnefnd þingsins að flytja það frumvarp sem ég hef beitt mér fyrir að yrði undirbúið, þá er ég tilbúinn að styðja það. Það liggur alveg fyrir og hv. þingmaður veit það og ætti ekki að þurfa að spyrja um það. Hann hefði getað spurt um það í sínum eigin flokki.