132. löggjafarþing — 103. fundur,  11. apr. 2006.

Vísinda- og tækniráð.

744. mál
[14:28]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum um Vísinda- og tækniráð. Með lögum um Vísinda- og tækniráð sem Alþingi samþykkti í ársbyrjun 2003 um málefni vísinda og tækni voru þessi mál samræmd og færð upp á efsta stig stjórnsýslunnar. Í ljósi aukinnar samkeppni og alþjóðavæðingar þótti nauðsynlegt að tryggja svo sem kostur er á að fjármunir sem varið er til vísindarannsókna og tækniþróunar séu nýttir á markvissari hátt en áður var og dugi til þess að ryðja nýrri þekkingu braut og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Í Vísinda- og tækniráði koma saman ráðherrar, vísindamenn og fulltrúar atvinnulífsins. Ráðið sem skipað er til þriggja ára í senn mótar stefnu í málefnum vísindarannsókna og tækniþróunar. Meginmarkmið stefnunnar er að treysta menningarlega og efnahagslega stöðu Íslands í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi þar sem höfuðáhersla er lögð á að auka úthlutunarfé opinberra samkeppnissjóða, að efla háskóla sem rannsóknastofnanir og endurskilgreina skipulag og starfshætti opinberra rannsóknastofnana.

Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvörpum iðnaðar- og viðskiptaráðherra um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun og frumvarpi til laga um breytingar á lögum um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.

Í fyrrnefnda frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að sameina Iðntæknistofnun Íslands, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og Byggðastofnun í nýja stofnun: Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Miðstöðin verður þekkingarsetur þar sem saman koma tæknirannsóknir með tengsl við rannsóknir í háskólum og háskólasetrum annars vegar og þróunarstarfsemi fyrirtækja hins vegar. Með síðarnefnda frumvarpinu er Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins tengdur við stefnumótun ríkisstjórnarinnar í málefnum rannsókna, nýsköpunar og atvinnuþróunar.

Þess vegna er lagt til í frumvarpinu að útvíkka starfsemi Vísinda-, og tækniráðs til samræmis þannig að það taki til umfjöllunar málefni atvinnuþróunar auk málefna vísinda-, tækni- og nýsköpunar eins og nú er gert. Útvíkkun starfsemi Vísinda- og tækniráðs með þessum hætti eykur þýðingu þess í stefnumótun ríkisstjórnarinnar í atvinnuþróun. Vegna þessarar viðbótar við verksvið ráðsins er lagt til að nafn þess taki breytingum til samræmis og það nefnt Vísinda- og nýsköpunarráð.

Þá er hér tillaga um að fulltrúum ráðsins verði fjölgað um tvo sem forsætisráðherra skipi án tilnefningar og komi þeir úr atvinnulífinu. Jafnframt er gert ráð fyrir að forsætisráðherra verði heimilt að kveðja allt að fjóra ráðherra til setu í ráðinu í stað tveggja nú. Eftir sem áður verða tvær nefndir starfandi á vegum ráðsins sem undirbúa málefni Vísinda- og tækniráðs á milli funda þess. Annars vegar er vísindanefnd sem undirbýr stefnu stjórnvalda á sviði grunn- og hagkvæmra vísindarannsókna. Hins vegar verður nýsköpunarnefnd sem undirbýr stefnu á sviði tækni, nýsköpunar og atvinnuþróunar. Náið samstarf þarf að vera á milli þeirra enda er um eina samfellda stefnu að ræða. Sú stefna þarf að taka til þátta sem fram til þessa hafa ekki verið á dagskrá ráðsins. Markmiðið er að vísinda- og nýsköpunarstefna ríkisstjórnarinnar geti orðið svo heildstæð að ýmiss konar sérstök stefnumótun verði samræmd með henni eða jafnvel falli inn í hana.

Hér er m.a. vísað til stefnumótandi byggðaáætlunar sem er á verksviði iðnaðarráðuneytisins. Byggðaáætlunin byggir nú þegar að talsverðu leyti á stefnu Vísinda- og tækniráðs og tekur einnig tillit til fjarskiptaáætlunar og stefnu í sveitarstjórnarmálum svo dæmi séu nefnd. Atvinnupólitísk stefnumótun Vísinda- og nýsköpunarráðs gæti orðið samnefnari slíkrar afmarkaðrar stefnumótunar.

Frú forseti. Ég vil taka fram af þessu tilefni að það hefur verið afar ánægjulegt að starfa í Vísinda- og tækniráði. Ég tel að þar hafi tekist afskaplega vel til og þeir fulltrúar sem þar hafa setið hafa jafnframt lýst yfir mikilli ánægju með starf í ráðinu. Þar er nú verið að vinna að stefnumörkun fyrir næstu þrjú ár og ég vil hvetja hv. alþingismenn til að kynna sér þá stefnumörkun sem þar fer fram. Ég tel mjög mikilvægt að atvinnulífið komi í ríkari mæli að þessu máli enda hafa fulltrúar atvinnulífsins lagt á það mikla áherslu. Ég tel að þarna sé mjög góður vettvangur til að marka stefnu fyrir hina nýju stofnun sem hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur mælt hér fyrir. Ég bind miklar vonir við að þessi skipan mála geti orðið til að efla samstarf milli menntastofnana, vísindastofnana, rannsóknastofnana og atvinnulífsins sem komi fram í störfum þeirrar stofnunar sem við erum hér að tala um og er m.a. forsenda þess að atvinnulífið hefur almennt lýst ánægju sinni yfir þessum breytingum með tilliti til þess að þeir komi í ríkari mæli að Vísinda- og tækniráði sem, ef þetta frumvarp verður að lögum, mun heita Vísinda- og nýsköpunarráð.

Gert er ráð fyrir að ákvæði þessa frumvarps taki gildi 1. september 2006 og þá komi þessir tveir nýju fulltrúar til setu í ráðinu til loka mars 2009. Eins og ég sagði áður er unnið að nýrri stefnumörkun í ráðinu sem mun taka gildi núna í maímánuði. En ég vænti þess að verði þetta frumvarp að lögum muni stefnumörkunin í framhaldi af því verða endurskoðuð og taki tillit til breyttra aðstæðna samþykki Alþingi þau frumvörp sem lúta að þessum málum.

Ég vildi svo, frú forseti, að þessum orðum sögðum leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allsherjarnefndar.