132. löggjafarþing — 103. fundur,  11. apr. 2006.

Samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu.

610. mál
[15:32]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Þetta er nokkuð hefðbundinn samningur um samskipti Íslendinga og Færeyinga að því er varðar veiðiheimildir og fátt sem kemur á óvart þar. Í raun er verið að tala um nánast sömu aflaheimildir.

Þó er eitt atriði í samningnum sem snýr að því að Færeyingar hafa á undanförnum árum sótt í að fá að fullvinna afla um borð í veiðiskipum, þ.e. uppsjávarafla og loðnu, og fyrirhugaðar eru viðræður um það fyrir 20. júní 2006 eftir því sem hér segir, með leyfi forseta:

„Sjávarútvegsráðherra Íslands tekur fyrir 20. júní 2006 til athugunar og ákvörðunar hvort þessum takmörkunum skuli aflétt.“

Út af fyrir sig er mjög skiljanlegt að Færeyingar sæki á í þessum efnum því vissulega hafa menn verið að gera verðmæti úr loðnunni, bæði með að frysta hana í landi til manneldis og eins um borð í skipum úti á sjó. Færeyingum hefur verið heimilt á undanförnum árum að landa loðnu hér til frystingar á Íslandi. En það hefur ekki verið heimilt að frysta hana um borð í skipum eða fara með hana til Færeyja til frystingar. Og einungis hefur verið heimilt að landa aflanum til bræðslu annars staðar en utan Íslands.

Þetta mál verður vissulega snúnara fyrir okkur að leggjast algjörlega gegn breytingum í þessa veru, ekki síst þegar við Íslendingar höfum verið að taka upp vaxandi vinnslu um borð í veiðiskipum á uppsjávarfiski, bæði síld og loðnu, og höfum þannig verið að reyna að gera meiri verðmæti úr tiltölulega litlum aflaheimildum, eins og voru t.d. á síðustu loðnuvertíð.

En þetta mál er nú samt þannig vaxið að ekki er einfalt fyrir okkur Íslendinga að gefa eftir þessa heimild um fullvinnslu. Það markast m.a. af því að við höfum ýmsa aðra samninga. Við höfum t.d. samningana sem tengdust EES-samningnum á sínum tíma um veiðar á 3.000 lestum af karfa í íslenskri lögsögu og nokkurs meðafla, og hefur fyrirspurnum um hve mikill hann hafi verið á undanförnum árum verið svarað hér í þinginu. Það var alveg vitað frá fyrstu tíð frá því þessi samningur var gerður að Evrópusambandsþjóðirnar, einkum Þjóðverjar, Bretar og Frakkar hafa sótt á um að inn í þann samning kæmi fullnustuákvæði. Var mjög sótt á um það á sínum tíma þegar samningurinn var gerður og Íslendingar neituðu því. Veiðar þessara skipa ganga eingöngu út á að veiða afla og landa honum sem ferskfiski, annaðhvort hér á landi eða á fiskmörkuðum í viðkomandi löndum. Við höfum ekki viljað fallast á að opna inn á fullvinnslu varðandi samning Evrópusambandsins um þann afla sem það hefur mátt veiða í íslenskri lögsögu.

Með því að gefa þetta eftir við Færeyinga að leyfa þeim að fullvinna aflann um borð í veiðiskipum værum við búin að skapa okkur ákveðið fordæmi sem væri mjög snúið fyrir okkur þegar sótt yrði á um samninginn við Evrópusambandið. Því vafalaust mundi Evrópusambandið taka upp þá kröfu á nýjan leik, sem það hefur reyndar aldrei fallið frá og vakið máls á af og til. Síðast, ef ég man rétt, var veiðisvæði þess stækkað hér við land til að mæta að nokkru gagnrýni þess en ekki heimiluð fullvinnsla. Þess vegna vil ég benda á það, hæstv. forseti, sem er kannski leið í þessu máli.

Ég skil hins vegar mjög vel áhuga Færeyinga, sem eru mjög háðir fiskveiðum og verðmæti sjávarfangs, að þeir vilji gera sem mest verðmæti úr þessum heimildum. Vissulega höfum við Íslendingar gert mikil verðmæti úr samningum okkar og veiðiheimildum okkar úr norsk-íslensku síldinni sem m.a. hefur veiðst innan færeyskrar lögsögu og ekki verið takmörk þar á.

Það sem ég held að væri kannski skref sem hægt væri að ganga í átt til Færeyinga, væri að breyta 2. mgr. 1. gr., þar sem segir:

„Heimilt er að landa aflanum til vinnslu á Íslandi. Óheimilt er að vinna eða frysta afla sem veiddur er á tímabilinu janúar til apríl um borð og utan Íslands …“ Hugsanlegt væri að bæta þarna inn í einu orði og segja: … utan Íslands og Færeyja.

Þar með hefðum við eingöngu leyft Færeyingum að landa afla af loðnu sem veidd er á þessum tíma frá janúar til apríl, annars vegar til fullvinnslu á Íslandi og hins vegar til fullvinnslu í Færeyjum en hefðum ekki leyft fullvinnslu um borð í veiðiskipum og ef loðnunni væri landað annars staðar en utan Íslands og Færeyja yrði henni eftir sem áður eingöngu landað til bræðslu eins og lagagreinin er nú.

Þetta gæti verið leið sem við gætum farið í svona samningaviðræðum til að koma eitthvað til móts við óskir Færeyinga sem eru mjög skiljanlegar, án þess að búa til sérstakt fordæmi varðandi Breta, Þjóðverja og Frakka sem munu örugglega nýta sér ef við opnum þetta alfarið til að sækja á um rétt til að fullvinna afla um borð í veiðiskipum á miðunum við Ísland og munu reisa þá kröfu á nýjan leik.

Ég vildi benda á þetta, hæstv. forseti, og stinga þessu hér inn í umræðuna ef það gæti ef til vill orðið til að stíga þarna skref án þess að við værum þar með búin að búa til fordæmi um að semja við aðrar þjóðir um fullvinnslu á afla um borð í veiðiskipum innan íslenskrar lögsögu.