Samningur milli Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Suður-Kóreu.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Suður-Kóreu sem undirritaður var 15. desember 2005.
Samningurinn við Suður-Kóreu kveður á um tollfrjáls viðskipti með iðnaðarvörur og sjávarafurðir og unnar landbúnaðarvörur. Kórea mun afnema tolla á flestum mikilvægustu útflutningsvörum Íslands frá og með gildistöku samningsins en samið var um stuttan aðlögunartíma fyrir niðurfellingu tolla á fáeinum viðkvæmum vörutegundum að hámarki fimm ár.
Mikil hefð er fyrir neyslu sjávarafurða í Kóreu. Fram til þessa hefur landið hins vegar lagt tolla á bilinu 10–20% á innflutning á íslenskum sjávarafurðum. Af þeim sökum standa vonir til að samningur þessi muni skapa aukin tækifæri fyrir viðskipti með sjávarafurðir milli Íslands og Kóreu. Þá kann Suður-Kórea einnig að vera áhugaverður markaður fyrir aðrar útflutningsvörur Íslendinga enda er mikill uppgangur í efnahagslífi landsins og margs konar viðskiptatækifæri að finna þar í landi.
Í samningnum er einnig að finna nánari ákvæði um vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, vernd hugverkaréttinda, samkeppnismál og opinber innkaup. Í tengslum við gerð samningsins gerðu Ísland, Liechtenstein og Sviss samning við Suður-Kóreu um gagnkvæma vernd fjárfestinga. Þá gerði Ísland tvíhliða samning við Suður-Kóreu um viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur. Tel ég að þessir samningar allir séu íslensku atvinnulífi mjög til hagsbóta.
Legg ég til virðulegi forseti, að lokinni umræðu verði tillögunni vísað til síðari umræðu og til hv. utanríkismálanefndar.