132. löggjafarþing — 103. fundur,  11. apr. 2006.

Stefna í málefnum barna og unglinga.

[16:27]
Hlusta

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf):

Frú forseti. Svör hæstv. forsætisráðherra valda mér gífurlegum vonbrigðum. Í fyrsta lagi staðfesta þau að Framsóknarflokkurinn meinar ekkert með því að hafa börn og fjölskyldur í fyrirrúmi. Hann talar einungis um slíkt rétt fyrir kosningar.

Í annan stað staðfesta orð forsætisráðherra að það að vísa málinu til fjölskyldunefndarinnar, þessari skýrslu, var leið forsætisráðherra til að drepa málið.

Í þriðja lagi staðfesta orð forsætisráðherra að ráðherraræðið er algjört hér á landi. Þinginu er hreinlega gefið langt nef og vilji þingsins hunsaður. Þingið kallaði fyrir fjórum árum eftir framkvæmdaáætlun og heildarstefnumótun í málefnum barna og ungmenna. Umboðsmaður barna og allir flokkar á Alþingi hafa kallað eftir því sama í mörg ár.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Veit forsætisráðherra að í skýrslu Íslands til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna árið 2003, sem starfar á grundvelli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en hlutverk hennar er að hafa eftirlit með að aðildarríkin virði barnasáttmálann, gáfu íslensk stjórnvöld, íslensk sendinefnd, þær upplýsingar að lögð væri áhersla á að í gangi væri heildarstefnumótun í málefnum barna sem væri að ljúka? Þetta var árið 2003.

Íslandi var hrósað sérstaklega fyrir að vinna að þessari heildarstefnumótun sem þá átti að ljúka. Hvað verður gert þegar barnaréttarnefndin kallar eftir þessari framkvæmdaáætlun? Þetta eru álitshnekkir fyrir Ísland hvernig að þessu hefur verið staðið gagnvart barnaréttarnefndinni og varðandi barnasáttmálann. Ég spyr hæstv. ráðherra: Veit hann að Ísland gaf þessa skýrslu á árinu 2003? Hvar er framkvæmdaáætlun og heildarstefnumótun í málefnum barna og ungmenna sem þingið hefur kallað eftir í mörg ár?