132. löggjafarþing — 103. fundur,  11. apr. 2006.

Framhaldsskólar.

711. mál
[21:02]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á gildandi lögum um framhaldsskóla Í frumvarpinu eru lagðar til tvær breytingar á lögunum. Annars vegar er lagt til að bóknámsbrautir framhaldsskóla verði fjórar í stað þriggja eins og er í núgildandi lögum. Hins vegar er lagt til að fella niður ákvæði í 24. gr. laganna um samræmd stúdentspróf í tilteknum greinum.

Með því að bóknámsbrautir framhaldsskóla verði fjórar í stað þriggja eins og er nú er lagt til að til viðbótar tungumálabraut, félagsfræðabraut og náttúrufræðabraut komi viðskipta- og hagfræðibraut. Með setningu núgildandi laga var námsbrautum til stúdentsprófs fækkað verulega. Ætlunin var að viðskiptanám yrði skilgreint sem starfsnám og viðkomandi starfsgreinaráði falið að gera tillögur þar um. Á undanförnum árum hefur hlaupið mikill vöxtur í háskólanám á sviði viðskipta, fjármála og hagfræði. Sú breyting er í samræmi við þróun í atvinnulífi og þjóðlífi almennt. Hafa bæði framhaldsskólar og viðtökuskólar á háskólastigi kallað eftir því að viðskipta- og hagfræðibraut verði tekin upp aftur sem bóknámsbraut og lagt er til að við því verði orðið í 1. gr. frumvarpsins.

Um þá breytingu sem frumvarp þetta felur í sér, að fella niður ákvæði 24. gr. gildandi laga um samræmd stúdentspróf í tilteknum greinum, vísa ég til umfjöllunar í greinargerð frumvarpsins um það hvenær umrætt ákvæði komi inn í framhaldsskólalögin og um framkvæmdina fram að þessu.

Eins og fram kemur í athugasemdunum getur tilgangur samræmdra prófa verið margþættur. Þau eru t.d. notuð til að athuga hvort námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð eða til að veita upplýsingar um skólahald, tengsl kennsluhátta og námsárangurs. Þeim er ætlað að vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur og veita nemendum, forsjáraðilum og skólum, þar með talið viðtökuskólum, upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda.

Frú forseti. Um sögulega umfjöllun samræmdra prófa vísa ég enn og aftur í greinargerð með frumvarpinu en söguna má rekja aftur til ársins 1929. Ef við hverfum til nútímans komu í ljós við framkvæmd samræmdra stúdentsprófa árið 2005 ýmsir annmarkar og nemendur sáu lítinn tilgang með prófunum, auk þess sem lítil merki sáust um að skólar á háskólastigi kölluðu eftir því að nemendur hefðu lokið slíkum prófum. Nokkrir framhaldsskólanna hafa talið það vandkvæðum bundið að bæta samræmdum stúdentsprófum við prófahald sem þar hefur tíðkast um árabil, bæði í lok vor- og haustannar. Þykir sýnt að prófin í núverandi mynd henti misvel einstökum nemendum, námsbrautum og framhaldsskólum.

Með hliðsjón af framansögðu er lagt til í 2. gr. frumvarpsins að 2. og 3. málsl. 2. mgr. og 4. mgr. 24. gr. gildandi laga falli brott og með því verða samræmd lokapróf í framhaldsskóla í tilteknum greinum aflögð. Verði frumvarp þetta að lögum nú á vorþingi er við það miðað að samræmd lokapróf í framhaldsskóla verði ekki haldin á vorönn yfirstandandi skólaárs, enda miðar gildistökuákvæði frumvarpsins við að lögin taki þegar gildi.

Samhliða því sem samræmd stúdentspróf verða felld niður í núverandi mynd verður unnið að frekari athugun á kostum og göllum samræmds prófmats á framhaldsskólastigi í tengslum við tíu punkta samkomulag menntamálaráðuneytis og Kennarasambands Íslands um bætt skólakerfi og væntanlega heildarendurskoðun á lögum um framhaldsskóla. Ég tel það vera mikilvægan lið í því starfi sem fram undan er að meta heildstætt hvaða leið sé heppilegust til framtíðar varðandi gæðamat og námsmat, m.a. með hliðsjón af niðurstöðu starfshóps um námsmat á framhaldsskólastigi og áformum um breytta námsskipan. varðandi gæðamatið og námsmatið

Meðal kosta sem sérstaklega þarf að gefa gaum er hvort skynsamlegt sé að tekin verði upp einstaklingsmiðuð rafræn könnunarpróf, líkt og nú er verið að þróa m.a. á Norðurlöndunum. Kom það m.a. til umræðu í starfshópi um námsmat og voru fulltrúar nemenda, kennara og fleiri í þeim hópi. Slík próf gefa möguleika á að koma til móts við þarfir einstakra nemenda og skóla, ásamt því að geta nýst viðtökuskólum og fræðsluyfirvöldum. Tilgangur könnunarprófanna væri fyrst og fremst að veita nemendum og skólum upplýsingar um stöðu einstakra nemenda í viðkomandi námsgrein þannig að unnt yrði að taka mið af því í áframhaldandi námi nemandans, bæði á meðan hann er í námi á framhaldsskólastigi og að því námi loknu. Þetta atriði var eins og ég gat um rætt í vinnu þess starfshóps sem fjallaði um samræmd próf.

Mikilvægt er að frumvarp þetta, verði það að lögum, taki þegar gildi þar sem gildandi lög kveða á um að nemendur geti ekki lokið stúdentsprófi án þess að hafa lokið samræmdum stúdentsprófum í tilteknum greinum. Eins og ég sagði áðan og ég ítreka enn skiptir þetta máli gagnvart þeim nemendum sem hyggjast ljúka stúdentsprófi á komandi vori.

Virðulegi forseti. Ég hef gert grein fyrir innihaldi frumvarps þessa og legg til að að lokinni þessari umræðu verði frumvarpinu vísað til 2. umr. og hv. menntamálanefndar.