132. löggjafarþing — 105. fundur,  21. apr. 2006.

Tilkynning um dagskrá.

[10:33]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Um klukkan hálftvö í dag, að loknu hádegishléi, fer fram utandagskrárumræða um manneklu á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Málshefjandi er hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir. Hæstv. heilbrigðisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.