Hækkun olíuverðs.
Frú forseti. Ég óska þingmönnum gleðilegs sumars og þeim öðrum sem heyra þá kveðju mína, einnig góða sumarkveðju til virðulegs forseta.
Heldur fannst mér snautleg viðbrögð hæstv. fjármálaráðherra við þeirri alvarlegu stöðu sem hér er uppi í þróun efnahagsmála og verðbólgu, þenslu og viðskiptahalla og reyndar gífurlegs óöryggis sem hefur orðið í efnahags- og atvinnulífi Íslendinga. Hæstv. ráðherra sagði að skoða þyrfti málið heildstætt. Já, en hvað ætlar hæstv. ráðherra þá að skoða? Að skoða málið heildstætt, eins og hæstv. ráðherra sagði, eru bara innantóm orð ef ekki er gerð nánari grein fyrir því.
Við erum í bullandi verðbólgu. Við erum í mjög alvarlegri stöðu með íslensku krónuna. Þetta er að gerast þrátt fyrir að hér hafi verið góðæri á undanförnum árum og áratugum. Undanfarin 10–15 ár hafa ekki nein stóráföll verið önnur en þau að sitja uppi með þessa ríkisstjórn, sem fer að nálgast kannski hamfarir að sitja uppi með. (Gripið fram í.)
Fyrir ári var rætt um hvernig ætti að taka á jöfnun flutningskostnaðar, t.d. út á land. Þessar hækkanir á eldsneyti sem við stöndum frammi fyrir eru ekki aðeins gríðarlega íþyngjandi fyrir einstaklinginn, hlaupa út í verðlagið og verðbólguna, heldur stórauka þær flutningskostnað út um land og skerða samkeppnisstöðu atvinnulífsins þar. Ríkisstjórnin hefur lofað aðgerðum hvað það varðar almennt séð en ekkert hefur gerst. Það á að taka á málinu heildstætt, sagði hæstv. ráðherra. Já, gerðu eitthvað, hæstv. ráðherra?