Ríkisútvarpið hf.
Frú forseti. Það er greinilegt að sölumenn sjálfstæðismanna í þessu máli eru slegnir út af laginu. Þeir skilja ekki einu sinni málið lengur ef marka mátti hv. þingmann sem var í hina röndina með einhvern ómálefnalegan útúrsnúning, eitthvað sem er ekki svara vert, um skúffufyrirtæki og eitthvað þess háttar.
Auðvitað viljum við standa vörð um og reka hérna alvöru Ríkisútvarp sem hefur skilgreind markmið en er ekki fyrst og fremst ríkisstyrktur fjölmiðill í bullandi samkeppni við markaðsstöðvarnar um sama efni.
Ég hugsa að hv. þingmaður hafi ekki lesið grein Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi 1. þingmanns Suðurlands og þingmanns sjálfstæðismanna á Suðurlandi, núverandi ritstjóra Fréttablaðsins sem hefur greint þetta mál ákaflega vel, öndvert við útúrsnúningana og misskilninginn sem rann hér upp úr hv. þingmanni áðan sem virðist hreinlega ekki átta sig á um hvað málið snýst, ef ég gat skilið hann rétt. Þetta er líka hans eina innlegg í umræðuna.
En sölumennirnir eru í einhverjum frígír. Þeir vita ekkert hvað þeir eiga að gera. Þeir segjast hafa orðið undir. Auðvitað vilja þeir selja. Er það ekki hv. þingmaður? Viljið þið ekki selja enn þá? Eða hvað? Af hverju er ríkisstyrktur fjölmiðill, með 2.500 millj. kr. meðgjöf á ári í bullandi samkeppni við einkareknu miðlana um sama hlutverk og sama efni?
Ég skora á hv. þingmann að lesa grein Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi þingmanns sjálfstæðismanna á Suðurlandi. Hann hefði ákaflega gott af því. Hún er upplýsandi og glögg greining á fáránleika þess … (Gripið fram í.) og trúlega hefur þingmaður kosið hann gegn Davíð Oddssyni í formannskjörinu 1991 ef marka má heimildir.
Í greininni kemur glöggt fram hve fráleit ráðstöfun það er að ganga svo fram sem ríkisstjórnarflokkarnir gera í þessu máli núna, og maður hefði nú kannski vænst þess að hv. þingmaður léti í það skína af hverju þessi skopleikur væri uppi af hálfu sölumanna Sjálfstæðisflokksins í málinu núna.