132. löggjafarþing — 105. fundur,  21. apr. 2006.

Ríkisútvarpið hf.

401. mál
[17:15]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég á varla orð, ég er svo undrandi á orðum hv. þingmanns. Þessi hv. þingmaður lagði fram þingmál hér, frumvarp til laga. Í því var sérstakur kafli þar sem farið var yfir frumvarp menntamálaráðherra. Þar segir beinlínis — kaflinn heitir frumvarp menntamálaráðherra. Þar er tekið sérstaklega fram á tveimur blaðsíðum hversu ranglátur nefskatturinn sé. Hv. þingmaður færir með nokkurri snilld á þessum tveimur blaðsíðum rök að því að nefskatturinn sé ranglátur og ekki eigi að setja hann á. Hann kemur með aðra aðferð sem er miklu skynsamlegri ásamt félögum sínum.

Nú kemur hv. þingmaður og hefur algjörlega skipt um skoðun. Hv. þingmaður þorir heldur ekki að gangast við því lengur að hann er einn af helstu prédikurum sölutrúboðsins gagnvart Ríkisútvarpinu.

Mér verður ekki oft orða vant, frú forseti, í ræðustól. En hér er þingmaðurinn að berjast fyrir því að það verði samþykkt sem (Forseti hringir.) hann skýrði manna best út í fyrra að væri ranglátt. (Forseti hringir.)