Ríkisútvarpið hf.
Forseti. Þetta hafa verið fróðlegar umræður hér þessar síðustu. Einkum þau andsvör sem hér hafa farið fram því að í fyrsta sinn í sögu þessara frumvarpa — það frumvarp sem nú er rætt er framhald af frumvarpi frá í fyrra — hafa af stjórnarliða hálfu verið nefnd orðin samningar og sættir.
Það er ánægulegt að þær umræður sem hér hafa farið fram — þetta mun vera þriðji dagur þeirra og þær hafa stundum staðið fram á nótt, hin fræga nótt hefur orðið mönnum minnisstæð, bæði stjórnarliðum og okkur stjórnarandstæðingum, og ég vona þeim forsetum þingsins sem þá sátu, þeim hv. þm. Jónínu Bjartmarz og Birgi Ármannssyni — virðast hafa borið einhvern árangur, a.m.k. í orðfæri hv. formanns menntamálanefndar Sigurðar Kára Kristjánssonar.
Nú veit ég ekki hvernig það fer þó ég voni hið besta því vinnubrögðin í þessu máli öllu, frá því í fyrra og ekki síður ef maður tengir það nú saman við fjölmiðlamálið, sællar minningar og ævarandi, hafa verið þannig að sættir og samningar hafa ekki verið það sem hefur vakað fyrir hæstv. menntamálaráðherra og þeim stjórnarliðum sem hafa komið að þessu.
Þetta mál hefur verið keyrt áfram eins vitlaust og það nú var og einu sættirnar og einu samningarnir sem gerðir hafa verið hafa verið gerðir við Eftirlitsstofnun EFTA, ESA. Þar hafa menn sem sé lotið valdinu að utan, vegna þess, eins og Sigurður Kári Kristjánsson upplýsti, að við gætum lent í kárínum frá því apparati, frá Evrópusambandinu, ef frumvarpið og lögin sem hugsanlega spretta upp af því verða ekki í samræmi við þær kröfur sem þar eru gerðar.
Það er rétt að rifja það upp strax að samningar og sættir voru ekki þau orð sem hv. formaður menntamálanefndar viðhafði síðan um tilmæli Evrópuráðsins sem Ísland er þó aðili að og sótti þá fundi þar sem þessi tilmæli voru samþykkt og gefin út. Hv. formaður menntamálanefndar hafnaði beiðni um að úr því ekki næðist í neinn sérfræðing til að skýra reglur eða tilmæli ESA í samhengi við þetta frumvarp yrði leitað til fjölmiðladeildar Evrópuráðsins sem okkur er að góðu kunn frá því í fjölmiðladeilunni. Hann hafnaði því á þeirri forsendu að tilmæli Evrópuráðsins byndu okkur ekki að þjóðarrétti.
Sú eina tilslökun sem hefur verið gerð í þessu máli, og reyndar er það saga sem þarf að segja, þó það verði nú ekki gert í þessari 2. umr., hefur verið gerð í skugga skipana og hugsanlegra málaferla sem við eigum á hættu að lenda í frá Evrópusambandinu góða, sem sem betur fer tekur oft fram fyrir hendurnar á íslenskum stjórnvöldum.
Þessi vinnubrögð héldu svo áfram í menntamálanefnd þegar málið var komið þangað núna í síðara skiptið með þeim hætti að málið var tekið vanbúið út úr nefndinni. Ekki voru boðaðir þeir gestir sem beðið var um á síðasta snúningi fyrir utan Evrópuráðsmálin og sú umræða var í rauninni ekki hafin sem er eðlileg um stórt mál af þessu tagi milli stjórnar og stjórnarandstöðu og einstakra þingmanna að sjálfsögðu innan nefndarinnar. Sú umleitan til sátta um einhvers konar málamiðlun eða niðurstöðu fór aldrei fram. Þess vegna var það eðlileg krafa stjórnarandstöðunnar, og hefur verið frá upphafi þessa máls, að úr því yrði bætt. Það þurfti til þess þrjá sólarhringa og þessa frægu nótt sem er mönnum í fersku minni, einkum þáverandi hæstv. forsetum, Jónínu Bjartmarz og Birgi Ármannssyni, og hæstv. menntamálaráðherra sem staddur var hér um nóttina og fór mikinn, að vísu ekki í ræðustól. Það er ánægjulegt að þessi tími hafi þó borið þennan árangur.
Áður en ég svara spurningum þeirra félaga hv. þm. Einars Más Sigurðarsonar og hv. þm. Sigurðar Kára Kristjánssonar — eða réttara sagt þó einkum hinum síðarnefnda um hvernig við viljum láta vinna málið, þ.e. hvernig við óskum eftir, svo allt sé nú orðað þinglega og kurteislega, að málið sé unnið í nefndinni ef til nefndarfundarins kemur, því að ekki má gleyma að fyrir liggur frávísunartillaga frá minni hlutanum í menntamálanefnd og aldrei að vita nema einhverjir stjórnarliðar sjái að sér og veiti henni liðsinni þannig að við þurfum ekki að hafa meiri áhyggjur af þessu frumvarpi — ætla ég að fara stuttlega yfir þau meginatriði sem hafa orðið þess valdandi að við tökum afstöðu gegn frumvarpinu og viljum vísa því frá.
Segja má að fyrir utan ýmis smærri atriði sé það einkum í fimm pörtum og einn af þeim varðar réttindi starfsmanna sem eru ófrágengin og er illa sinnt í frumvarpinu þó að allur tími í heiminum hafi í raun gefist til að ganga frá þeim málum þannig að starfsmenn séu við þau þolanlega sáttir þó að fjölmörg fordæmi, því miður allt of mörg, séu fyrir því að ganga frá þeim réttindum við færslu ríkisstofnunar í hlutafélagsform og þó að mikil reynsla sé fyrir því að ef ekki er gengið frá þeim endar það með málaferlum og leiðindum sem eru bæði til fjárskaða og til ama þeim sem að því standa. Hér hefur því verið spáð að það verði enn svo. Ég ætla ekki að fjalla frekar um þau mál heldur vitna sérstaklega til ræðna hv. þingmanna Einars Más Sigurðarsonar og Ögmundar Jónassonar. Ég átti þess ekki kost að hlusta gerlega á ræðu hv. þm. Atla Gíslasonar en það sem ég heyrði var hann einnig að skýra, a.m.k. í hluta ræðu sinnar, þessi réttindi og það hafa fleiri gert.
Í öðru lagi, sem er eitt af aðalmálunum í frumvarpinu þó að það varði að mínu viti ekki meginkjarna málsins en kemur honum þó allmikið við, eru hugmyndirnar um fjáröflun. Það er rétt sem áðan kom fram að afnotagjaldið eða útvarpsgjaldið eins og það heitir opinberlega hefur ýmsa galla og hafði strax árið 1985 þegar einkaréttur Ríkisútvarpsins til útvarpssendinga á Íslandi var afnuminn. Ég hef verið duglegur við að taka undir það. Sumum finnst ég hafa verið fullduglegur við það að við þyrftum að huga að afnotagjaldinu og því yrði að breyta. Það væri sennilega, eins og vinsælt er að segja í þessum stól, barn síns tíma. Þó er það ekki brýnna mál gagnvart Evrópusambandinu en svo að í endurskoðun á hinum konunglega sáttmála, Royal Charter, sem rekstur og starfsemi BBC í Bretlandi byggist á, er kveðið á um það að afnotagjöldin í Bretlandi skuli haldast á því tímabili sem þar er tiltekið, þ.e. fram til ársins 2016. Þeir hjá BBC eru því ekki hræddari við hið mikla vald Evrópusambandsins en svo að þeir ætla að halda þessu. Hins vegar segja þeir, kannski eitthvað svipað og aumingi minn, að þegar þessu lýkur sé eðlilegt að kanna möguleika á því að taka upp aðrar fjármögnunarleiðir og gera sér þess vegna grein fyrir vandamálinu um afnotagjöldin. Það vandamál er m.a. það að í Bretlandi eins og annars staðar er hægt að losna við afnotagjöldin með því að taka á móti sjónvarpsefni í gegnum tölvur og þannig viðurkennir BBC að framtíðin liggi ekki í þeirri fjármögnunarleið.
Ég tek undir og hef áður gert þá galla sem eru á afnotagjaldinu en á því er náttúrlega einn stór kostur og hann er þessi beina tenging sem fæst milli áhorfenda og hlustenda og síðan Ríkisútvarpsins sjálfs. Í staðinn fyrir afnotagjaldið hefur sú ein hugmynd verið uppi að leggja á nefskatt. Nefskattur er, eins og lýst hefur verið í umræðunni, gjarnan með tilvitnun í hinn ágæta texta ríkisskattstjóra, ósanngjarn skattur. Hann getur verið réttlætanlegur til skamms tíma þegar á að gera einhvers konar átak þar sem öll þjóðin á að taka saman en hann er ósanngjarn vegna þess að hann er ekki miðaður við neins konar tekjur og fer þess vegna villur vegar í því hlutverki skattheimtunnar að vera til tekjujöfnunar sem er eitt af helstu hlutverkum í samfélagi af okkar gerð eða samfélagi eins og við viljum hafa það. Ég hygg að elsti nefskattur á Íslandi hafi verið sá, þingheimi til upplýsingar og skemmtunar ef nefna má, að einhvern tíma var samþykkt af Alþingi að Íslendingar allir ættu að reiða fram þann skatt í þjóðarþágu að yrkja níðvísu um norskan konung og það var gert og má segja að þar hafi verið vel að verki staðið og sjálfsagt að endurtaka það ef þarf gagnvart ókurteisu og freku fólki í útlöndum og kannski innan lands líka.
Við samfylkingarmenn höfum sagt um þetta: Það er engin patentlausn, það er engin ein leið til að fjármagna ríkisútvarp. Allar leiðir hafa sína kosti og allar hafa þær sína galla. Það sem við höfum sagt, m.a. í þingsályktunartillögu sem við fluttum í fyrra er: Setjumst niður, stjórnmálamenn, starfsmenn Ríkisútvarpsins og forustumenn þess, aðrir fjölmiðlamenn, fulltrúar almennings og förum yfir þessi fjármögnunarmál. Við höfum bent á að það sem best kynni að vera væri einhvers konar blönduð leið sem drægi úr ókostum hinna einstöku leiða. Menn töluðu um þetta áðan, hv. þingmenn Sigurður Kári Kristjánsson, Össur Skarphéðinsson og Einar Már Sigurðarson. Allmargar leiðir hafa verið nefndar, t.d. tenging við tekjuskatt, sem er auðvitað ein fyrsta hugmyndin sem manni dettur í hug.
Hv. þm. Pétur Blöndal hefur verið með athyglisverða hugmynd um að lækka persónuafslátt sem þessu nemur sem hefði þann kost að þá fengist ákveðin tekjutenging og tillit tekið til tekna manna, þó að sú leið kunni að hafa aðra ókosti. Menn hafa nefnt fjárlög að sjálfsögðu. Hægt er að draga úr hinum mikla ókosti við fjárlagaleiðina, sem er sá að þingið ákveður á hverjum tíma hversu hátt framlagið á að vera, með því að gera langtímasamning sem stjórnmálaflokkarnir reyndu að standa allir að og stæðu síðan við þangað til næsti samningur er gerður.
Menn hafa líka nefnt, eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson tók fram áðan, hugmynd sem ég hygg að eigi upphaf sitt hjá Ríkisútvarpinu sjálfu í hugleiðingum sem þar voru, a.m.k. heyrði ég þetta fyrst hjá Þorsteini Þorsteinssyni sem þar er markaðsstjóri, góður drengur og duglegur tekjuöflunarmaður fyrir Ríkisútvarpið. Menn hafa líka nefnt rásargjald, þ.e. að borguð væru afnot af þeirri auðlind sem hljóðvarps- og sjónvarpsrásirnar eru innan Ríkisútvarpsins. Menn hafa með sama hætti nefnt auglýsingagjald, þ.e. einhvers konar skatt á auglýsingar í öðrum ljósvakamiðlum sem þá væri á sett í samkomulagi þar sem Ríkisútvarpið tæki það á sig að minnka sínar eigin tekjur af auglýsingum og kostun, sem er auðvitað enn ein leiðin í tekjuöflun Ríkisútvarpsins.
Ef menn vilja setjast yfir þetta í rólegheitum koma margar aðrar leiðir til greina en sá nefskattur sem einn er uppi hafður í allri þessari umræðu og látið eins og ekkert annað sé til. Hv. þm. Einar Már Sigurðarson hefur farið yfir þetta í ræðu sinni í 2. umr. og læt ég lokið umfjöllun minni um þetta atriði.
Meginmálið í gagnrýni okkar á frumvarpið, meginatriðin í þeim breytingum sem við viljum standa að á núverandi stjórnkerfi Ríkisútvarpsins má kannski nefna í þrennu lagi. Í fyrsta lagi að Ríkisútvarpið verði raunverulegt almannaútvarp, afmarki stöðu sína með þeim hætti, skýri hlutverk sitt á nýjum tímum, sem að vísu eru orðnir 20 ára gamlir í tilviki Ríkisútvarpsins, geri með því þann samfélagslega samning við einkarekstur í þessum geira, við markaðsstöðvarnar sem halda sér uppi sjálfar án ríkisstyrks, að það sé skýrt hlutverk Ríkisútvarpsins að verða almannaútvarp.
Í öðru lagi teljum við í stjórnarandstöðunni og samfylkingarmenn sem ég tala fyrir, að grunnforsenda fyrir öllum breytingum á Ríkisútvarpinu — við héldum satt að segja í bernsku okkar að um þetta væri samstaða — væri sú að aflétta þar pólitískum ítökum, flokkspólitískum ítökum, persónupólitískum ítökum einstakra ráðherra og valdsmanna, aflétta þar þeim tökum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur talið sér rétt og skylt að hafa síðustu tíu, fimmtán, tuttugu árin með mannaráðningum og dagskrárstjórn af ýmsu tagi. Það er ekki gert í frumvarpinu.
Í þriðja lagi höfum við gagnrýnt harðlega þær breytingar á rekstrarformi sem hér eru lagðar til, þ.e. að stofna hlutafélag í stað þess að halda Ríkisútvarpinu sem ríkisstofnun, sem auðvitað kemur vel til greina með ákveðnum lagabreytingum og aldrei hefur í raun verið farið út í að kanna, hugsanlega að undanteknu frumvarpi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, eða sem við samfylkingarmenn höfum talið betra, að breyta Ríkisútvarpinu í sjálfseignarstofnun sem hæfir ákaflega vel fyrirtæki af þessu tagi í atvinnurekstri, þ.e. ef meiningin er sú að fyrirtækið sé almannaútvarp og sé ekki í samkeppni við aðrar stöðvar nema að því leyti sem sjálfsagt er og leiðir af því að stunda útvarpsrekstur.
Það er þetta þrennt sem við höfum talað um. Ég hef gert það í ræðu sem tók þrjá tíma að flytja og ýmsir hv. þingmenn hafa kennt við málþóf, flestir án þess að hafa verið viðstaddir ræðuna, vegna þess að þar fór ég mjög rækilega yfir þessa þrjá þætti í framsögu fyrir nefndaráliti minni hluta menntamálanefndar.
Hlutafélagsformið verð ég þó að tala aðeins meira um. Það er rétt hjá hv. formanni menntamálanefndar, Sigurði Kára Kristjánssyni, að hvorki ég né aðrir samfylkingarmenn — ég ætla ekki að tala fyrir fleiri þingmenn, ég treysti mér til að tala fyrir okkur 20 samfylkingarmenn hér, þriðjung af þingliðinu — við erum ekki á móti hlutafélagi í sjálfu sér, ekki á móti því hugtaki eða því rekstrarformi í sjálfu sér. En við teljum að það rekstrarform eigi einkum við fyrirtæki í atvinnurekstri en sé ekki gott rekstrarform fyrir fyrirtæki sem styrkt er af almannafé. Við fundum þetta út sjálf og höfum verið þessarar skoðunar nokkuð lengi en hins vegar var ánægjulegt að fá með í þetta lið fyrrverandi lærimeistara ýmissa ungra sjálfstæðismanna, Þorstein Pálsson, sem nú er ritstjóri Fréttablaðsins og hefur skrifað um þetta ágætar greinar, nú síðast í gær grein sem heitir: Samkeppni en ekki rekstrarform tryggir hagkvæmni. Ég er að vísu ekki fullkomlega sammála fyrirsögn greinarinnar en tel ákaflega margt gott í þeirri grein. Af því að hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson er hérna viðstaddur, langar mig að lesa hluta af grein Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, undir millifyrirsögninni: Ríkisstyrkt hlutafélög yfirleitt verst rekin.
Að formi til er þessi grein Þorsteins Pálssonar svar við skrifum útvarpsstjóra sem hefur talið sig knúinn að skipta sér af þessari deilu um Ríkisútvarpið. Hann segir í grein sinni, með leyfi forseta:
„Útvarpsstjóri segir í grein sinni að eina ástæðan til þess að stofna hlutafélag um rekstur Ríkisútvarpsins sé sú að það rekstrarform tryggi betri nýtingu á skattpeningum almennings. Nú veit útvarpsstjóri eins vel og hver annar að hlutafélagaformið hefur ekkert að segja varðandi rekstrarhagkvæmni fyrirtækja.
Tilgangur rekstrarformsins er sá einn að auðvelda eiginfjáröflun án þess að eigendur beri meiri ábyrgð en nemur hlut þeirra. Takmörkun ábyrgðar er með öðrum orðum höfuðröksemd hlutafélagaformsins.
Mörg hlutafélög eru illa rekin og nýta tekjur sínar illa. Almennt er viðurkennt að verst séu þau hlutafélög rekin sem að meira eða minna leyti byggja afkomu sína á ríkisstyrkjum. Og almennt er litið svo á að ríkisstyrkir spilli heiðarlegri samkeppni.“ — Þetta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands.
Þetta er gott fyrir sjálfstæðismenn að hafa í huga vegna þess að kröfur Eftirlitsstofnunar EFTA, stofnunarinnar ESA, byggjast einmitt á þessu fyrst og fremst að grannskoða fyrirkomulag ríkisútvarpsmála hér og reyndar víðar vegna ríkisstyrkja sem kunni að spilla heiðarlegri samkeppni og ekki eigi að veita nema sérstakar ástæður séu til.
Þorsteinn Pálsson heldur áfram, með leyfi forseta:
„Að þessu athuguðu verður ekki séð að sú fullyrðing útvarpsstjóra standist að tryggja eigi betri nýtingu fjármuna með hlutafélagaforminu einu. Og ekki verður því trúað að hann eða ríkisstjórnin vilji færa fram þau rök að markmiðið sé að spilla heiðarlegri samkeppni á markaði.
Verði frumvarpið um Ríkisútvarpið hf. að lögum mun almenningur eiga greiðari aðgang að ýmsum upplýsingum varðandi rekstur einkarekinna almenningshlutafélaga á þessu sviði en ríkisfyrirtækisins. Það segir nokkra sögu.“
Þar kemur Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands, að því sem hefur verið einn af kjarnapunktunum í gagnrýni okkar á þessa vitleysu með hlutafélagið og hvernig hún er fram sett í frumvarpinu sem er að ríkishlutafélagið sameinar það versta úr tveimur heimum. Annars vegar það viðskiptaform í kringum samkeppnisfyrirtæki sem fær forskot vegna mikils ríkisstyrks en hins vegar er það í eigu almennings án þess að almenningur geti fengið neinar upplýsingar um gang þess og rekstur.
Hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson og fleiri hv. þingmenn úr þeim flokki hafa bent á að búið sé að ráða bót á þeim vanda með því að í hlutafélagafrumvarpi sem er á leið hér í gegnum þingið leyfist þingmönnum að koma með skriflegar fyrirspurnir á aðalfund. En eins og ég hef vakið athygli á áður eru tímar Bakkaskipsins sem fréttamiðils á Íslandi liðnir fyrir nokkrum árum. En Bakkaskipið var þannig að það var skipsferð sem kom til Íslands einu sinni á ári ef voraði vel og flutti tíðindi utan úr heimi, t.d. hvort kóngar væru enn við völd sem Íslandi stjórnuðu og hvort enn væri friður eða stríð í Evrópu frá því um haustið þegar síðasta skip fór.
Í svipuðum dúr er þessi upplýsingastefna hjá Sjálfstæðisflokknum, að þingmenn megi koma með skriflegar fyrirspurnir einu sinni á ári, væntanlega á svipuðum tíma og Bakkaskipið kom á vorin, og fái henni svo svarað á aðalfundinum. Ef þeir sætta sig ekki við þau svör verða þeir að bíða í ár í viðbót til að koma með næstu fyrirspurn. Og þannig koma upplýsingarnar. En Þorsteinn Pálsson, sem er hagvanur, bendir hins vegar á það með okkur ýmsum hér að ef fyrirtæki er skráð á markaði er því skylt að gefa Kauphöllinni, fyrir utan auðvitað hluthöfum sínum, nákvæmar upplýsingar um rekstur og þá viðburði sem gætu raskað rekstri og stofnað hlutafé í hættu miklu meira en einu sinni á ári, nema menn sérstaklega vilji. Ríkisútvarpið hf. þarf því ekki að svara spurningum nema einu sinni á ári meðan önnur fyrirtæki á þessum sama markaði þurfa að haga sér með allt öðrum hætti vegna þess að þau taka þátt í markaðssamfélaginu sem Ríkisútvarpið ætlar sér ekki að gera þótt það sé algerlega opið að það fyrirtæki verði í bullandi samkeppni áfram við markaðsstöðvarnar.
Það er vissulega rétt, eins og ég sagði áðan, að almannaútvarp er ekki eitthvað hreint og tært, þ.e. það hlýtur að standa í einhvers konar samkeppni, þó ekki sé annað en með fréttaflutningi, þá eru menn auðvitað komnir í ákveðna samkeppni. Þorsteinn Pálsson, sem ég ætla að vitna til aftur til heiðurs þeim unga lærisveini hans, hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni, segir um þetta með sínu orðalagi, með leyfi forseta, þetta hér.
„Þeir sem horfa á viðfangsefnið út frá sjónarmiðum samkeppnismarkaðarins þurfa vissulega að sætta sig við að sveigt sé hjá ýmsum almennum samkeppnisleikreglum. En það hlýtur á hinn bóginn að vera málefnaleg lágmarkskrafa af þeirra hálfu að fylgt sé almennum reglum um meðferð almannafjár og alþjóðlegum skuldbindingum um ríkisstyrki.“
Jafnvel þótt eingöngu séu lesnar greinar Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu sem eru nú orðnar þrjár talsins hygg ég, eða fjórar, og tekið mark á þeim mundi málflutningur Sjálfstæðisflokksins batna mjög í þessu efni. Ég hygg að ef hæstv. menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins tæki í alvöru mark á Þorsteini Pálssyni — ég verð nú að viðurkenna að hann er kannski ekki uppáhaldsstjórnmálamaður minn eða beinlínis leiðtogi lífs míns — mundi hæstv. menntamálaráðherra draga frumvarpið til baka og fara að vinna það öðruvísi. (Gripið fram í.)
Í lok þessa kafla ræðu minnar, sem ég ætlaði að hafa stutta og verður stutt — ég bið hv. þingmann að stilla sig, það er kaffi hérna frammi í sal og ágætt að hvíla sig aðeins áður en næsta umræða byrjar — ætla ég að segja þetta: Menn hafa velt fyrir sér af hverju frumvarp sem er svona illa unnið, af hverju frumvarp sem ekki er haft um neitt samráð, af hverju frumvarp sem augljóst er að ekki verður sátt um á þinginu og ekki annars staðar, er fram keyrt með þessum hætti. Ég held að það sé í rauninni tvennt. Það sé annars vegar metnaður menntamálaráðherra sem ég hef fjallað um nokkuð áður en hins vegar sé þörfin ósköp einfaldlega sú að menn eru að reyna að standa í eltingarleik við Eftirlitsstofnun ESA og við reglur Evrópusambandsins og við reglur Evrópuráðsins um ríkisútvarpsmál eða almenn útvarpsmál á Íslandi.
Ef um þetta verður 3. umr. hyggst ég í henni gera stuttlega grein fyrir þróun Evrópuréttar á þessu sviði og hvað gerst hefur síðustu 20 árin í því máli. Ég þakka Ólafi F. Friðrikssyni fyrir að hafa ljáð mér og reyndar gefið mér eintak af BA-ritgerð sinni um þetta mál, sem heitir Ríkisreknir fjölmiðlar á samkeppnismarkaði. En þar kemur mjög skýrlega og glöggt í ljós, sem menn vissu svo sem, hvernig rétturinn er að þróast og hvaða sviptingum má gera ráð fyrir á næstunni í þessum efnum. Það skiptir miklu máli að Íslendingar geri sér grein fyrir því að þær ákvarðanir sem teknar eru, séu í samræmi við þá þróun og standi ekki beint á móti henni þannig að þær séu í augljósri andstöðu við þær.
ESA hefur ekki leyft þetta frumvarp. Það er ekki þannig. ESA hefur ekki samþykkt þetta frumvarp með neinum hætti. ESA hefur gert athugasemdir við núverandi skipan mála. Hún hefur rætt við fulltrúa ráðuneytisins um hvað geti tekið við. En ESA tekur enga afstöðu til neins fyrr en frumvarpið er fullsmíðað og ekki fyrr en í raun að það yrði þá kært til Eftirlitsstofnunar ESA. En nú er í gangi eins og menn vita tvö mál fyrir eftirlitsstofnuninni þar sem núverandi fyrirkomulag Ríkisútvarpsins er til umræðu.
Kannski er það vitlausasta við frumvarpið að það skapar einmitt ekki sátt. Það skapar engan samningsvilja. Ef það verður óbreytt að lögum verða þau lög ekki til frambúðar, verða ekki til langframa. Í fyrsta lagi gagnvart Evrópusambandinu, Eftirlitsstofnun ESA og þeirri þróun sem þar fer fram.
Í öðru lagi vegna þess að frumvarpið, að því er mér sýnist og rakið hefur verið m.a. í ræðu hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar, stangast á við þau tilmæli sem hafa komið um almannaútvarp hjá Evrópuráðinu.
Í þriðja lagi vegna þess að keppinautar, það eru bara ósköp einfaldlega yfirlýsingar frá þeim um það, munu ekki sætta sig við þessa skipan. Það veldur hver á heldur og við eigum eftir að sjá hvernig unnið verður úr frumvarpinu sem má túlka á ýmsan veg þegar kemur að framkvæmd þess. En eins og málin standa núna eru keppinautarnir engu nær, og það er ekki að vænta neinnar sáttar á ljósvakamarkaðnum eða vettvanginum almennt um frumvarpið.
Í fjórða lagi er augljóst að ekki er pólitísk sátt um frumvarpið og ekki sú sátt meðal almennings um Ríkisútvarpið nú og í væntanlegri framtíð, ef þetta verður samþykkt, sem þarf að vera, sem er undirstaða þess að almannaútvarp geti starfað á þann hátt sem það á að gera í lýðræðis- og menningarsamfélagi af okkar tagi.
Ég fagna því eins og ég gerði í upphafi ræðu minnar að málið skuli hafa þróast þannig að frumvarpið verði tekið á ný inn í menntamálanefnd ef því verður hreinlega ekki vísað frá í lok 2. umr. Ég tel að þegar að þeim fundum kemur með nefndinni þurfi að minnsta kosti að gera þetta: Það þarf að ráðgast við starfsmenn að nýju og fulltrúa stéttarsamtaka þeirra um réttindamálin. Athuga þarf fjárhagsstöðuna upp á nýtt og fá af því fréttir hvernig gengur að koma fjárhagsstöðu hins væntanlega Ríkisútvarps hf. upp í núllið þannig að hið nýja fyrirtæki verði ekki gert gjaldþrota á fyrsta degi starfsemi sinnar. Það þarf að kalla inn, eins og við báðum um í nefndarstarfinu fyrir 2. umr., fulltrúa Samkeppniseftirlits og Ríkisendurskoðunar til að skýra hvernig þær stofnanir ætla að sjá um annars vegar innra eftirlit og hins vegar ytra eftirlit. Ekki eingöngu á rekstrarsviði, heldur einnig á sviði sem tekur til fjölmiðlunarmálanna sjálfra, en nú er ekki fyrir hendi í þeim stofnunum að því ég veit að minnsta kosti, ég hef ekki heyrt í fulltrúum þeirra, nein sú þekking eða kunnátta sem gerir það að sjálfsögðum hlut. Eftir slíku eftirliti er sérstaklega kallað í bréfunum frá Eftirlitsstofnun ESA eins og menn geta kynnt sér í gögnunum sem menntamálanefnd býr yfir. En frá því er ákaflega takmarkað gengið í frumvarpinu og raunar ekki.
Af menntamálaráðuneytisins hálfu þarf að skýra betur hvers konar þjónustusamning menntamálaráðherra hyggst gera við Ríkisútvarpið en meðan á umfjölluninni stóð í menntamálanefnd í fyrra, svo ég nefni það nú, og núna, er ákaflega óljóst hvort sá samningur yrði gerður og hvernig hann væri. Hann kom ekki við sögu núna fyrr en hann fannst í nokkrum línum í spurningu ESA til menntamálaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins um hvort sá þjónustusamningur yrði ekki örugglega gerður opinber. Svarið hlýtur að verða já, vegna þess að ekki ætla menn að láta dæma sig í Evrópudómstólnum þess vegna.
Að þessu loknu þarf það að gerast í nefndinni sem ekki gerðist við fyrri umfjöllun og olli því að málið kom vanbúið úr henni og olli því að umræðan hér hefur verið svo löng sem raun ber vitni, það þarf að fara fram alvöruumræða innan nefndarinnar um stöðu mála, um gagn þeirra ákvæða sem í frumvarpinu eru nú, og um tillögur þær og hugmyndir sem hafa komið frá stjórnarandstöðunni í þessu efni. Ef þetta gerist skulum við vona að við mætum til 3. umr. með þau orð að leiðarljósi sem hv. þingmaður og formaður menntamálanefndar, Sigurður Kári Kristjánsson, nefndi í fyrsta sinn af hálfu stjórnarliða í tveggja vetra umræðu okkar um Ríkisútvarpið: Samningsvilji og sættir.