Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES og atvinnuréttindi útlendinga.
Frú forseti. Við ræðum hér breytingu á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Það sem er meira en gagnrýnisvert við vinnubrögð ríkisstjórnarinnar og félagsmálaráðherra í þessu máli er hve seint það er komið fram. Staðan er sú að ef þetta frumvarp verður ekki að lögum fyrir 1. maí eða eftir örfáa daga, þá fellur niður aðlögunarfresturinn sem við og fleiri lönd nýttum okkur 1. maí 2004 þegar 10 ríki urðu aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Áhrifin eru að sameiginlegi vinnumarkaðurinn mun að fullu koma til framkvæmda gagnvart þessum aðildarríkjum. Með þessum afleitu vinnubrögðum er löggjafarþingið knúið til afgreiðslu á málinu á einn eða annan hátt á örfáum dögum ef aðlögun á ekki að falla úr gildi nú 1. maí og óheft frjáls för opnast til landsins frá þessum ríkjum sem eru Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland.
Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvers vegna var málið ekki komið fyrr til þingsins svo við hefðum haft nokkurn tíma til undirbúnings? Því alltaf var vitað að aðlögunin mundi falla niður 1. maí 2006 en möguleikar fyrir okkur sem aðra ESB aðila að Evrópska efnahagssvæðinu var að framlengja aðlögun allt til ársins 2011. Sá möguleiki er fyrir hendi. Það er afar mikilvægt að Ísland undirbúi sig vel áður en að fullu opnast fyrir frjálsa för til atvinnu- og búseturéttar þessara þjóða hér á landi. Þá er ég ekki bara að hugsa um Íslendinga, heldur og ekki síður að við getum tekið sómasamlega og vel á móti því fólki sem hingað leitar eftir búsetu og vinnu. Og við getum sem best aðlagað okkur að þeim breytingum út frá mennta-, menningar-, búsetu- og félagslegum sjónarmiðum. Sannarlega á okkar land að vera opið fyrir þessum þjóðum sem munu auðga og gera okkar þjóðfélag fjölbreyttara. En það er skylda okkar gagnvart Íslendingum og innflytjendum og öðrum sem dvelja hér til skemmri eða lengri tíma, að undirbúa okkur fyrir þessa breytingu og aðlögun útlendinga að þjóðfélagsháttum hér, þannig að sómi sé að fyrir okkur og að koma þessa fólks til landsins sé farsæl í alla staði bæði fyrir það og okkur Íslendinga.
Það höfum við ekki gert að mínu mati, virðulegi forseti, og þess vegna veldur það mér áhyggjum að knýja eigi þetta mál í gegn á örfáum dögum þannig að málið muni ekki hljóta eðlilega þinglega meðferð og fá álit hjá aðilum vinnumarkaðarins og annarra aðila eins og þeim sem unnið hafa að málefnum innflytjenda með eðlilegum umsagnartíma.
Við verðum að leggja mat á þá reynslu sem aðrar þjóðir hafa af frjálsri för fólks frá hinum ólíku þjóðum til að þekkja og læra hvernig best er að búa okkur undir að taka á móti fólki frá nýjum aðildarríkjum ESB sem óska að koma hingað til lengri eða skemmri tíma. Þekkja hvernig á að bregðast vandamálum við sem aðrar þjóðir hafa glímt við í þessu sambandi o.s.frv.
Við höfum hingað til sem betur fer, ekki orðið mikið vör við harkalega árekstra hér á landi milli ólíkra menningarhópa. En sífellt heyrum við um atburði erlendis frá um harkaleg átök milli innflytjenda og innfæddra og af því þurfum við að læra. Því margt bendir til að innflytjendum muni fjölga verulega hér á landi við þessa breytingu en áætlað er að erlendir ríkisborgarar og útlendingar hér á landi séu nú um 20.000 manns. Grundvallaratriði er að ólíkir menningarhópar eiga að geta átt friðsamlega sambúð sem felst í því að jafnræði ríki á öllum sviðum og að ekki myndist stéttaskipting þannig að aðlögun verði eðlileg og ekki myndist hér eins konar útlendingagettó.
Þetta er mikilvægt innlegg inn í þessa umræðu og um þetta hefur t.d. Eiríkur Bergmann tjáð sig og er ástæða til að vísa til þess sem hann sagði nýlega í Fréttablaðinu. Þar ræðir hann þessi mál og í fyrirsögn greinarinnar segir að hætta sé á að útlendingagettó myndist í Breiðholtinu. Hann vísar til ýmissa landa þar sem óvenjulega mikil harka hefur verið í samskiptum innflytjenda og innfæddra. Hann telur að ekki hafi verið nægileg aðlögun að því sem koma skyldi hér á landi og hann spyr hvað stjórnvöld og stjórnmálaflokkar hafi gert til að mæta þessari aðlögun sem við nú stöndum frammi fyrir, til að við lendum ekki í sömu þjóðfélagsátökum milli menningarhópa eins og átt hafa sér stað í öðrum löndum Evrópu. Hann vitnar til þess að Íslendingar hafi tekið upp danska og norska löggjöf í innflytjendamálum en sú danska sé sú harkalegasta sem til sé í Evrópu. Hann segir síðan, með leyfi forseta:
„Við erum í þeirri einstöku aðstöðu að geta brugðist við þróuninni. Það er enn tími til þó að hann sé naumur og við hefðum átt að vera búin að bregðast við fyrir löngu.“
Það er einmitt þetta sem ég er að vitna til. Ég tel að við hefðum átt að nýta þessa aðlögun miklu betur og undirbúa okkur betur fyrir það sem koma skal og til þess höfðum við virkilega tíma. Það er sannarlega brýnt með vísan til þess að vandlega sé farið yfir hver réttarstaða innflytjenda er samkvæmt gildandi lögum og hvort jafnræðis sé þar gætt í samræmi við stjórnarskrána. Og einnig hvort réttarstaða þeirri standist t.d. alþjóðlega samninga sem Ísland hefur staðfest.
Ég spyr hæstv. ráðherra: Liggur fyrir einhver úttekt á hvaða áhrif það hefði ef verulegur fjöldi innflytjenda kæmi hingað til búsetu og atvinnu í kjölfar þeirra breytinga sem fylgja þessum lögum? Hefur verið lagt eitthvert mat á hvaða áhrif það hefði þegar við förum inn í þessa opnun nú? Ísland er þegar orðið fjölmenningarlegt samfélag sem er auðvitað af hinu góða en við höfum ekki sem skyldi skoðað í kjölinn réttarstöðu þess fólks sem hingað flytur.
Það verður auðvitað ekki fram hjá því litið að það er ákveðin hætta á að það fólk sem hingað flytur, ef það verður margt ófaglært fólk, fari í láglaunastörf sem gerir það verkum að erfiðara verður að hækka þessi lágu laun og hefði auðvitað verið betra fyrir hagsmuni láglaunastéttanna hér á landi að betur hefði gengið að hækka þessi smánarlaun. Fróðlegt væri að fá fram skiptingu á því hvaða atvinnustéttum þessir 20.000 erlendir ríkisborgarar tilheyra og væri ágætt að fá það fram við meðferð þessa máls.
En ég vil spyrja hæstv. ráðherra einnar mikilvægrar spurningar varðandi þessa lagasetningu: Hvað rekur svona á eftir að falla frá þeirri aðlögun sem við höfum haft? Og í ljósi þessa stutta tíma sem við höfum nú til að afgreiða málið í þinginu væri ráðherra þá reiðubúinn til að beita sér fyrir lagasetningu sem framlengdi aðlögunina, segjum til næstkomandi áramóta þannig að hún tæki þá gildi og við nýttum tímann til undirbúnings eins og kostur væri? Lagasetningin nú mundi þá einungis fela í sér að við framlengdum aðlögunina t.d. til næstkomandi áramóta og nýttum þann tíma til nauðsynlegrar stefnumótunar í málefnum innflytjenda og þingið hefði þá eðlilegan tíma til þess að fjalla um málið. Ráðherra upplýsir að nú eftir að þessi lög hafa verið samþykkt verði ASÍ og SA boðið til samráðs um hvað eigi að taka við 1. maí næstkomandi. ASÍ hefur m.a. lagt áherslu á að skoðaðar verði hugsanlegar breytingar sem gera þurfi í kjölfar þessarar opnunar.
En ég spyr hæstv. ráðherra: Væri það ekki boðlegra fyrir þingið og málið í heild að hugmyndin um laga- og reglugerðir og breytingar sem þurfa að fylgja og ASÍ hefur kallað eftir, lægju fyrir áður en fallið verði frá aðlöguninni? Þess vegna spyr ég um þessa mánuði, hvort það væri ekki skynsamlegra að standa þannig að málinu.
Svo er hitt að æskilegt væri að fá frekari reynslu á lögin um starfsleigur áður en til þessarar opnunar kemur því það er höfuðnauðsyn að ná utan um þau undirboð sem hér hafa viðgengist í of ríkum mæli þar sem gengið er gegn grundvallarréttindum launafólks um kaup og kjör.
Varðandi stefnumótun í málefnum innflytjenda vitna ég t.d. til greinar Baldurs Kristjánssonar um málefni innflytjenda núna nýlega. En hann er formaður nefndar fyrrverandi félagsmálaráðherra sem gerði tillögu um innflytjendaráð og er varaforseti Evrópunefndar um kynþáttamálefni. Í grein Baldurs kemur fram að unnar hafa verið tillögur um hvernig standa skuli að samþættingu ólíkra hópa sem innflytjendaráð gerði um stefnu stjórnvalda í málefnum innflytjenda.
Ég spyr: Af hverju fylgir sú tillaga ekki þessu frumvarpi? Hvað hefur verið gert með hana? Ég spyr hvort þetta frumvarp hafi verið borið undir innflytjendaráð og hvort það sé sammála því að nú sé tímabært að fara í þá opnun sem hér er lögð til. Því það er auðvitað afar slæmt að ekki skuli liggja fyrir stefnumótun í þessu máli sem t.d. hefur verið rætt hér á þingi og að ekki liggi fyrir allar þær breytingar sem ASÍ hefur verið að kalla eftir í tengslum við bæði starfsmannaleigurnar og þessa breytingu sem við erum að fjalla hér um, frjálsa för launafólks.
Það væri auðvitað freistandi að fara hér yfir ítarlegt minnisblað sem var lagt fyrir miðstjórn ASÍ 22. febrúar síðastliðinn um þetta mál og þetta frumvarp sem við fjöllum hér um. Þar er í löngu máli fjallað um hvaða breytingar þarf að gera varðandi þetta mál, t.d. aðhald með starfsemi þjónustufyrirtækja auk aukinnar upplýsingagjafar og aðstoð við erlent verkafólk, leita leiða til að koma í veg fyrir og draga eins og kostur er úr hættunni á gerviverktöku o.s.frv., sem ég hef ekki tíma til að fjalla um hér. En það eru ýmsar ábendingar, ýmsar tillögur, ýmsar breytingar á reglugerðum og lögum sem ASÍ telur að þurfi að vinna að til að við séum sæmilega í stakk búin til að opna hér fyrir meira en gert hefur verið.
Það virðist líka vera ágreiningur um þetta mál innan verkalýðshreyfingarinnar og vitna ég þar til ályktunar stjórnar Starfsgreinasamband Austurlands en þar kemur fram að reynslan sýni að íslensk löggjöf sé ekki tilbúin að taka á málum sem upp hafa komið og í ljósi mikillar þenslu er hætt við að aukið eftirlitslaust flæði launafólks muni grafa undan grundvallaratriðum velferðarkerfisins. Í ljósi þessa ágreinings, sem t.d. virðist vera í þessu máli innan verkalýðshreyfingarinnar en þar er ekki samstaða um þetta, þá spyr ég: Er boðlegt að bjóða þinginu hér upp á örfáa daga til að gera þetta mál að lögum? Ég kalla eftir því hvort hæstv. ráðherra sé tilbúinn til að fresta þessari breytingu þannig að við mundum framlengja aðlögunina um nokkra mánuði þannig að við værum betur undirbúin að taka á þessu máli.
Í því minnisblaði sem ég vitnaði til frá ASÍ var fjallað um aðlögun í tengslum við innkomu þessara nýju aðildarríkja árið 2004. Þá var niðurstaðan sú að 12 af 15 aðildarríkjum ESB ákváðu að nýta sér aðlögunarfrestinn og sama gildir þá um Ísland og Noreg. Nú er það nokkuð misjafnt hvernig þessar þjóðir ætla að taka á þessum málum. En engu að síður er mjög brýnt að það sem ég hef hér nefnt verði skoðað sérstaklega.
Ég vil segja það, virðulegi forseti að við eigum fyrst og fremst að setja metnað okkar í að vel sé tekið á móti þessu fólki og það verði ekki annars eða þriðja flokks þjóðfélagsþegnar. Að því lúta áhyggjur mínar nú, að við höfum ekki undirbúið okkur nægilega vel í þessu efni og það er auðvitað grundvallaratriði, m.a. til að sporna gegn kynþáttafordómum og að hér geti sprottið upp þjóðernisöfgaflokkar eins og víða hefur gerst og það er mikilvægt að sátt ríki milli ólíkra menningarhópa hér á landi.
Ég tala auðvitað fyrir, eins og fjölmargir aðrir, fjölmenningarlegu samfélagi þar sem jafnrétti ríkir og jafnræði milli þegnanna og gagnkvæm virðing fyrir ólíkum þjóðfélagshópum. En ég gagnrýni harðlega hvernig vinnubrögð ríkisstjórnarinnar hafa verið í þessu máli og að hún skuli ekki að minnsta kosti hafa komið fyrr með þetta mál inn í þingið. Þetta er bara ekki boðlegt. Og að við séum ekki betur undirbúin fyrir þessa opnun en raun ber vitni. Þess vegna ítreka ég þær spurningar sem ég hef lagt fyrir hæstv. ráðherra í þessu máli.