Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES og atvinnuréttindi útlendinga.
Virðulegi forseti. Eins og kom fram í stuttu andsvari mínu áðan þá klóra ég mér svolítið í höfðinu yfir þessu máli, ég átta mig ekki alveg á hvað hér er í gangi ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Ég veit ekki betur en að stjórnvöld geti frestað gildistöku þessara reglna fram til ársins 2009. (Gripið fram í.) Svo kom fram í sjónvarpsfréttum í gær að aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, sem hlýtur að eiga eitthvað undir sér í þessu máli, lýsi því yfir að íslenskur vinnumarkaður sé alls ekki tilbúinn til að taka við öllum þeim útlendingum sem menn eiga von á að sækja muni til Íslands. Það er víða pottur brotinn í þessum málum hjá okkur Íslendingum en þarna kom fram að Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, hafi mjög alvarlegar efasemdir um að rétt sé að gera þetta núna með þessum hætti, með þessum mikla flýti, og að stjórnvöld hefðu að sjálfsögðu átt að nýta heimildina til að fresta gildistöku þessara laga svo undirbúa mætti málið betur.
Mig langar líka, virðulegi forseti, til að minna enn og aftur á mjög sterk viðvörunarorð sem Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur viðhaft varðandi þetta mál. Tími okkar er skammur núna og ég ætla ekki að vera langorður en ég vil nota tækifærið og benda þingmönnum á að kynna sér það sem Vilhjálmur hefur skrifað á heimasíðu verkalýðsfélagsins á Akranesi. Hann hefur uppi mjög sterk varnaðarorð gegn því að þetta frumvarp verði afgreitt núna.
Í stuttu andsvari mínu áðan minnti ég á að það eru blikur á lofti í efnahagsmálum á Íslandi. Við gætum staðið frammi fyrir samdrætti, við gætum hugsanlega staðið frammi fyrir auknu atvinnuleysi. Hér skín ekki alltaf sólin, það er ekki alltaf þannig að hér sé hið svokallaða góðæri allan sólarhringinn alla daga ársins áratugum saman. Að sjálfsögðu munum við lenda í niðursveiflu. Þegar allt er saman tekið og ég skoða málið, les athugasemdir við frumvarpið, þær upplýsingar sem þar liggja fyrir, skoða þau gögn sem borist hafa frá verkalýðshreyfingunni, þau viðvörunarorð sem forkólfar hennar hafa haft uppi, þá hlýt ég að setja mjög stórt spurningarmerki við málið og ég lýsi því yfir að ég mun hafa fullan fyrirvara í þessu máli. Ég er sjálfur áheyrnarfulltrúi í félagsmálanefnd og við hljótum að skoða þetta mjög vandlega þar og þá einmitt og ekki síst, virðulegi forseti, velta því fyrir okkur hvort ekki sé skynsamlegra að leita leiða til að fresta gildistöku málsins eins og við höfum heimildir til í stað þess að reyna að kýla það í gegn núna á mettíma.
Ég segi þetta fyrst og fremst vegna þess að ég hef áhyggjur af íslenskum atvinnumarkaði og þróuninni þar. Ég tel að ef hingað flæði útlendingar til að leita sér að vinnu, frá Póllandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Slóveníu, Slóvakíu, Eistlandi, Lettlandi og Litháen, gæti það valdið okkur Íslendingum töluvert miklum vandræðum.
Ég er ekki að segja þetta, og það má enginn skilja mín orð með þannig, af því að ég hafi eitthvað á móti útlendingum, alls ekki. Ég sé hins vegar fyrir mér að þetta geti leitt til þess að við lendum í vandamálum af félagslegum toga vegna þess að hér verði spenna á vinnumarkaði í náinni framtíð, ekki vegna þess að hér sé svo mikil eftirspurn eftir vinnuafli heldur miklu frekar að svo mikil eftirspurn verði eftir vinnu að hér verði hugsanlega aukið atvinnuleysi, það harðni á dalnum. Í ljósi þess finnst mér hreinlega óskynsamlegt, virðulegi forseti, og ég ítreka það, óskynsamlegt af ríkisstjórninni að fara út í þetta núna.