132. löggjafarþing — 107. fundur,  24. apr. 2006.

Samráðshópur um atvinnumál á Suðurnesjum.

[15:33]
Hlusta

utanríkisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir að forsætisráðherra muni ljúka tilnefningum í þennan starfshóp í dag eða á morgun. Þetta hefur dregist. Það er rétt. Það er óheppilegt. Það kom fram ósk m.a. frá verkalýðshreyfingunni um að eiga aðild að þessum hópi. Ég geri ráð fyrir að við þeirri ósk verði orðið. Hópurinn verður því eitthvað stærri en upphaflega var ráðgert. En þetta mál verður vonandi klárað alveg á næstu dögum svo þessi hópur geti hafið störf.