132. löggjafarþing — 109. fundur,  26. apr. 2006.

Tilkynning um dagskrá.

[12:02]
Hlusta

Forseti (Birgir Ármannsson):

Um klukkan hálffjögur í dag fer fram utandagskrárumræða um stöðu garðplöntuframleiðenda. Málshefjandi er hv. þm. Margrét Frímannsdóttir. Hæstv. landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson verður til svara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.