Samkeppnisstaða ríkisbanka á húsnæðismarkaði.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort það er til að bæta hag skuldugra eða lántakenda hjá Íbúðalánasjóði að auka kostnað hans af ýmsum þáttum með hækkun á hlutfalli og greiðslu ábyrgðargjalds þó það hljóti auðvitað að verða áleitnari spurning með árunum ef viðskiptabankarnir bjóða betri kjör en ríkið á þessum markaði, hvert hlutverk ríkisins sé orðið.
Ég er hingað kominn til að gera stutta athugasemd við þau orð hæstv. fjármálaráðherra að hér hafi húsnæðisvextir farið lækkandi. Það er auðvitað aldeilis af og frá. Samkvæmt spá hæstv. fjármálaráðherra eða ráðuneytis hans frá því í fyrradag, hygg ég, er verðbólga á Íslandi 5,9%. Við hana leggjast vextir upp á 4,5% sem þýðir að húsnæðisvextir á Íslandi í ár verða yfir 10% og ég trúi að þeir séu hvergi hærri í ríkjum OECD, hvergi hærri í Norður-Evrópu. Það er þess vegna beinlínis villandi að halda því fram að hér fari húsnæðisvextir lækkandi og er eyðsluhvetjandi (Forseti hringir.) ef eitthvað er.