132. löggjafarþing — 109. fundur,  26. apr. 2006.

Malarnáma í Esjubergi.

658. mál
[13:45]
Hlusta

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S):

Frú forseti. Malarnám er eins og kunnugt er starfsleyfisskyldur rekstur samkvæmt lögum nr. 7 frá 1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Starfsleyfisútgáfan og eftirlitið er í höndum heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfissviði Reykjavíkur er Steypustöðin hf. með starfsleyfi til efnistöku úr námunni. Umhverfissviði Reykjavíkur hefur ekki verið tilkynnt um neinar breytingar þar á, en breytingar, þótt ekki sé nema á rekstraraðila, kalla á breytingar á starfsleyfi. Í þeim tilvikum þar sem starfsemi er hætt er hlutaðeigandi gert að ganga frá námusvæðinu í samráði við leyfisútgefanda og eftirlitsaðila. Þetta er mjög skýrt samkvæmt lögum.

Í tilefni fyrirspurnarinnar bað ég umhverfissvið Reykjavíkur um frekari upplýsingar um þetta mál, svo sem hvort annar rekstraraðili hafi tekið að sér vinnslu úr námunni, sem mundi þá kalla á leyfi til þess, eða hvort námuvinnslunni hafi verið hætt. Ekki hefur enn þá borist svar frá Reykjavíkurborg um þetta efni.