132. löggjafarþing — 109. fundur,  26. apr. 2006.

ILO-samþykkt um uppsögn starfs af hálfu atvinnurekanda.

756. mál
[14:35]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka það sem hér hefur verið lagt til málanna og hef í rauninni engu við svar mitt að bæta. Ég hef ákveðið að láta skoða þetta mál og fá þá niðurstöðuna upp á borðið, leiðbeiningareglur. Ég mun leggja þær fyrir þá aðila sem hlut eiga að máli. Það er sá farvegur sem ég vil setja þetta mál í núna. Ég tel mikilvægt að um þetta náist farsæl niðurstaða.