132. löggjafarþing — 109. fundur,  26. apr. 2006.

Hjúkrunarheimili og öldrunarþjónusta.

765. mál
[15:13]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil vekja athygli á því að þau hjúkrunarrými sem koma munu til sögunnar á næstu árum gera ekki meira en rétt að halda í horfinu. Því fer fjarri að þau komi til með að leysa vandann. Hér á Reykjavíkursvæðinu, svo dæmi sé nefnt, eru 300 einstaklingar í brýnni þörf. Það hefur einnig komið fram í skýrslum, sem gerðar hafa verið um þetta efni, að þriðjungur af þessu fólki fær aldrei þjónustu vegna þess að það deyr áður en að því kemur. Þetta fólk hefur ekki tíma til að bíða.

Það er vissulega gagnlegt að skoða statistíkina og samspil ýmissa þátta. Bætt heimaþjónusta styttir t.d. biðlistana. Einnig er á það að líta, af því að við ræddum fyrir stundu mannekluna á sjúkrastofnunum og hjúkrunarheimilum, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sérstaklega. (Forseti hringir.) Það er hin stóra spurning hvernig búið er að þessu fólki hvað varðar vinnuaðstæður og kjör. Það er nauðsynlegt að bæta hvort tveggja verulega.