132. löggjafarþing — 113. fundur,  2. maí 2006.

Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

794. mál
[16:45]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er álíka erfitt að sjá fyrir um verðbreytingar á eldsneyti eins og genginu. Þeir aðilar sem ég hef ráðfært mig við eru ekki á einu máli um að verð á eldsneyti muni endilega fara hækkandi, það gæti jafnvel lækkað eitthvað eða staðið í stað. Þess vegna er rétt að hafa það tímabundið meðan við erum enn að sjá hvernig þetta þróast, sérstaklega hvað varðar innbyrðis hlutföllin á milli bensíns og dísilolíu. Eins og hv. þingmenn allir vita verður flutt nýtt fjárlagafrumvarp næsta haust og þar með tekjuáætlun og þá er eðlilegt að tekin verði afstaða til þess hvernig þessum málum verður háttað á næsta ári í kringum fjárlagaafgreiðsluna.

Síðan varðandi hitt hver tekjuáhrif hins nýja kerfis hafa verið, ég er ekki með neinar tölur á takteinum um það sérstaklega hvort það hafi brugðið út af því sem áætlað hafði verið. Mér er ekki kunnugt um að svo sé, en er hins vegar ekki með neinar tölur sem staðfesta það. Sjálfsagt verður hægt að koma þeim á framfæri við hv. nefnd þegar málið verður þar til umfjöllunar.