Olíugjald og kílómetragjald o.fl.
Það er þá eitthvað nýtt ef Samfylkingin er tilbúin að skoða eitthvað af því sem ríkisstjórnin kemur með. Ég held að það sé hins vegar alveg borðlagt að sú kaupmáttaraukning sem orðið hefur vegna skattalækkunarákvarðana ríkisstjórnarinnar er talsvert umfram það sem hv. þingmaður nefndi án þess að ég ætli að fara að karpa um það.
Það eina sem ég var að leggja áherslu á var hvað það kemur mér á óvart hversu afgerandi Samfylkingin er í því að gera einmitt þetta. Að vísu hefur hv. þingmaður aðeins dregið í land með það þannig að það er eitthvert svigrúm ef niðurstaðan yrði sú þegar búið væri að meta efnahagsástandið heildstætt og þá í samhengi við hvernig eldsneytisverð í heiminum er að þróast og þá kæmust menn að þeirri niðurstöðu að það þyrfti að grípa til einhverra svona hluta. En ég er langt frá því að vera viss um að þess þurfi og vitna þá til nýjustu efnahagsspár ráðuneytisins.