Dagskrá fundarins.
Hæstv. forseti. Þingflokkunum og formönnum þingflokkanna hefur borist til eyrna það sjónarmið frá sveitarstjórnarmönnum víðs vegar um land að það væri vel þegið að Alþingi drægi sig nú í hlé til að gefa sveitarstjórnarmönnum svigrúm til kosningabaráttu fyrir kosningar sem efnt verður til síðar í þessum mánuði, 27. maí.
Við höfum skilning á þessu sjónarmiði og við höfum fyrir okkar leyti sagt að við værum reiðubúin að semja um þinglokin. Þessu hefur ríkisstjórnin hins vegar hafnað. Hún hefur að vísu sagt að hún væri tilbúin að ljúka þinginu hið snarasta ef við létum það yfir okkur ganga að hér yrðu að landslögum ýmis frumvörp sem eru harla umdeild í þjóðfélaginu: Ríkisútvarpið, Matvælarannsóknir hf., Landhelgisgæslan hf., eða alla vega að hluta til með stórkostlegri skerðingu á réttindum og kjörum starfsmanna, ÁTVR hf., sem er nú á dagskrá þingsins og næst í röðinni. Jú, ríkisstjórnin segir: Það er alveg sjálfsagt að ljúka þinginu hið snarasta, þess vegna á fáeinum dögum, ef stjórnarandstaðan lætur það yfir sig ganga að gera þessi umdeildu mál að landslögum fyrir vorið.
Að sjálfsögðu er ekki fólginn í þessu nokkur vilji til samninga. Við lýsum þess vegna fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórninni vegna þess ástands sem nú er komið upp í þinginu, fullkomin upplausn og fullkomið ráðaleysi frá ríkisstjórninni. Það veit enginn hvað hún ætlar sér raunverulega. Það er eitt sem er deginum ljósara og það er viljaleysið til að ganga til samninga við stjórnarandstöðuna og verða þannig við mjög réttmætum og skiljanlegum áskorunum sem þinginu berast frá sveitarstjórnum víðs vegar um landið.
Hæstv. forseti. Ég legg til að nú verði gert hlé á fundinum og formenn þingflokkanna komi saman til fundar til að ræða framvinduna hér í þinginu þótt ekki sé nema til næstu þriggja klukkutíma.