132. löggjafarþing — 113. fundur,  2. maí 2006.

Almannatryggingar.

792. mál
[22:24]
Hlusta

Ásta Möller (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður beindi til mín fjórum spurningum, a.m.k. tók ég niður fjórar spurningar.

Verður hægt að kaupa sig fram fyrir röðina í þessu nýja kerfi? Ég geng út frá því að læknar sem eru utan samnings í þessu tilviki setji sama verð upp, hvort sem sjúklingur fær greiðsluþátttöku eða ekki. Eini munurinn er sá að sá sjúklingur sem fer ekki fyrst til heimilislæknis heldur beint til hjartalæknisins borgar það fullu verði en sá sem fer til heimilislæknisins fyrst og síðan til hjartalæknis fer með sinn reikning og fær hann endurgreiddan hjá TR. Verðið sem sjúklingurinn borgar er hið sama en sjúklingur sem fer til heilsugæslulæknis á undan fær endurgreiðslu að þeim hluta sem TR endurgreiðir. Ég tel því ekki að þetta gefi tilefni til þess að kaupa sig fram fyrir röðina í þessu tilviki.

Varðandi það að þeir efnameiri fari á einn stað en hinir á þrjá þá hafa báðir sömu möguleika. Þeir hafa möguleika á að fara á þrjá staði og möguleika á að fara á einn stað. Þetta er hið valfrjálsa stýrikerfi sem hæstv. heilbrigðisráðherra var að tala um. Valfrelsi þessara einstaklinga ræður hvaða leið þeir fara.

Um það hvort sama ástand muni skapast og í tannlæknaþjónustunni kem ég kannski að í seinni ræðu minni.