132. löggjafarþing — 113. fundur,  2. maí 2006.

Almannatryggingar.

792. mál
[23:39]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Frú forseti. Við höfum verið að ræða í kvöld frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum. Enn einu sinni ræðum við breytingar á almannatryggingalögunum án þess að skoða lögin í heild. Verið er að tala um að hér sé ákveðin tiltekt á ferðinni. Það er alltaf viðkvæðið þegar almannatryggingalögin eru tekin hér fyrir, þá er tiltekt, verið að breyta smávegis, pínulitlu og aldrei horft á þetta í heild.

Nú erum við að þessu vegna þess að hér er komið upp það ástand, eins og segir í greinargerðinni, að sérfræðingar í hjartalækningum hafa sagt sig frá samningi Læknafélags Reykjavíkur og samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Það er búið að setja reglugerð og koma á tilvísunarkerfi sem menn hafa verið að lýsa í ræðum sínum. Hér höfum við verið að ræða þetta frumvarp til laga en höfum eiginlega ekkert talað um frumvarpið. Við höfum aðallega verið að tala um þá reglugerð sem hæstv. ráðherra setti á dögunum og afleiðingar hennar.

Ég nefndi í andsvari áðan við hv. þm. Ástu Möller að ég hefði efasemdir um að reglugerðin sem hæstv. ráðherra hefði sett stæðist lög. Ég hef enn efasemdir og ég held að 2. gr. í frumvarpinu staðfesti þær efasemdir mínar því að hér er verið að skjóta lagastoðinni undir þessa reglugerð sem þegar hefur tekið gildi. Síðan erum við að breyta því að börn yngri en 18 ára eru nú tryggð með foreldrum sínum, var áður 16 ára, og verið er að gera ýmsar smábreytingar á almannatryggingunum.

Alvarlega málið sem við erum að ræða hérna er það sem hv. þm. Jónína Bjartmarz kallar neyðarúrræði sem er leiðin sem þessi reglugerð kveður á um, tilvísunarkerfið. Hér er hæstv. ráðherra að láta hjartalæknadeiluna hrekja sig út í tvöfalt kerfi en hún sjálf, flokksmenn hennar og formaður Framsóknarflokksins hafa lýst því yfir að þau séu andvíg slíku kerfi. Ég er einmitt með útskrift frá hæstv. forsætisráðherra, Halldóri Ásgrímssyni, þar sem hann segist andvígur tvöföldu heilbrigðiskerfi og neitar því alfarið. Það er skýr stefna Framsóknarflokksins að það eigi alls ekki að koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi, segir Halldór Ásgrímsson í Morgunblaðinu 15. mars síðastliðinn. En því miður erum við komin með slíkt kerfi eins og ítrekað hefur verið sýnt fram á í umræðunni á undan. Það er stórfelld hætta á tvöföldu kerfi, það er verið að mismuna fólki eftir efnahag. Þeir sem hafa minna milli handanna þurfa að hafa meira fyrir því að fá þjónustuna og standa ekki jafnfætis þeim sem eru betur settir efnahagslega.

Ég sagði áðan að hæstv. ráðherra væri að láta hjartalæknadeiluna hrekja sig út í tvöfalt kerfi. Það er líka ríkisstjórnarmeirihlutinn á þingi með fjárveitingum sem er að hrekja ráðherrann og hrekja okkur út í þetta tvöfalda kerfi vegna þess að hann hefur ekki verið tilbúinn að setja það fé í heilbrigðisþjónustuna sem þarf. Ég hitti hjartalækni í morgun sem sagði mér að það hefði munað 10 millj. kr. Ég hef ákveðnar efasemdir um að reynt hafi verið til þrautar að semja við þessa lækna. Það getur vel verið að þetta sé ekki rétt með 10 millj. Það getur vel verið að það séu 14 millj. kr. og jafnvel hærra en það hefði átt að vera hægt að semja um þetta og mætast á miðri leið.

Ég er alveg sannfærð um að sú leið sem verið er að fara með þessari reglugerð, tilvísunarkerfi, mun verða dýrari. Það kostar að vera með tilvísunarkerfi. Hún kostar eitthvað öll þessi skriffinnska í kringum kerfið og það kostar líka þegar fleira fólk kemur inn á bráðadeild eins og fulltrúar Landspítala – háskólasjúkrahúss bentu á á fundi heilbrigðis- og trygginganefndar. Það munu fleiri koma inn í dýrasta úrræðið og ég hef ákveðnar efasemdir um að við séum við því búin að taka við meiri fjölda þar inn. Það kostar heilmikla peninga.

Það er líka verið að gera þessar breytingar á almannatryggingalögunum til þess að koma í veg fyrir málsókn frá þeim sem munu borga fullt og ekki fá tilvísun. Það kom fram í heilbrigðisnefndinni að það væri ástæðan. Ég spurði í heilbrigðisnefndinni: Á að fara að setja frumvarp til að skjóta lagastoð undir reglugerðina? — sem ég hafði þarna efasemdir um. Nei, það er ekki endilega það. Það er aðallega að koma í veg fyrir að þeir sem borga fullt fari í lögsókn við ríkið. Það er alveg rétt sem kom fram hjá hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrr í kvöld að það voru þau rök sem komu fram í nefndinni fyrir því að gera þyrfti þessar lagabreytingar á almannatryggingalögunum.

Við vitum alveg að heilsugæslan hefur verið hornreka hjá þessari ríkisstjórn og skortur hefur verið á heimilislæknum. Fjöldi Reykvíkinga hefur ekki haft sérstakan heimilislækni og ég leyfi mér að efast um að heilsugæslan anni þessu ef tilvísanakerfið fer að koma gagnvart fleiri læknum en hjartalæknum. Ég óttast að aðrir komi í kjölfarið. Ég óttast að þeir sem ekki sætta sig við samningana segi sig bara af þeim og setji sér sína eigin gjaldskrá eins og hjartalæknarnir. Ég hef verulegar áhyggjur af þessu. Heilsugæslan mun þá ekki geta annað þessu. Ég er aftur á móti alveg sammála því að það á með öllum ráðum að reyna að koma því þannig fyrir að það sé verið að þjóna sjúklingum á réttu stigi, það eigi að byrja á grunnþjónustunni. Þess vegna var ég á sínum tíma, þegar rætt var um tilvísunarkerfið í Tryggingastofnun þegar ég starfaði þar, hlynnt því að það yrði að stýra þessu nokkuð, sjúklingunum. Það er auðvitað ekki eðlilegt að menn sjúkdómsgreini sig sjálfir og fari síðan til sérfræðinga þegar hægt er að veita þeim þjónustuna á lægra þjónustustigi eins og í heilsugæslunni.

Það hefur komið fram í umræðunni að margir sjúklingar eiga ekkert val. Það er alveg rétt. Það kom fram hjá hv. þm. Pétri Bjarnasyni. Margir sjúklingar eiga ekki val. Það fer t.d. eftir efnahag hvað þeir geta leyft sér. Sumir verða að fara þessa löngu leið eins og t.d. efnalitlir og aldraðir margir hverjir — þurfa að bíða eftir því að komast að hjá heilsugæslunni, fá þar tilvísun, fara síðan til sérfræðingsins, bíða eftir að komast til hans. Þegar þeir koma þangað þurfa þeir að borga fulla fjárhæð og síðan þurfa þeir að fara með reikninginn í Tryggingastofnun til að fá endurgreitt. Þessir sjúklingar eru auðvitað að borga meira en þeir gerðu áður en þessi deila varð til þess að þetta kerfi var sett á. Þá borgaði maður einu sinni en þeir sem þurfa að fara til hjartalæknis eru búnir að fara tvisvar. Þeir eru búnir að borga komugjaldið á heilsugæslustöð og síðan sjúklingshlutann hjá hjartalækninum. Það fer síðan eftir því hversu háa upphæð honum þóknast að rukka hversu mikil útgjöldin verða því auðvitað greiðir Tryggingastofnun ekki nema þann hluta sem hún telur sig eiga að greiða samkvæmt gjaldskrá ráðherra. Þetta er því ekki eins einfalt og margir hyggja í fyrstu.

Þetta hefur líka marga ókosti í för með sér. Hjartalæknar eru ekki lengur undir eftirliti Tryggingastofnunar eins og er þegar þeir eru á samningi. Læknabréfin eru líka í uppnámi o.s.frv. Ég spyr hæstv. ráðherra: Gerir hún ráð fyrir að það þurfi að ráða fleiri heimilislækna í framhaldinu? Það vantar heimilislækna á ýmsar heilsugæslustöðvar. Ég tel að það vanti eina 8 eða 10 heimilislækna á höfuðborgarsvæðinu a.m.k. Síðan er það einn sjúklingahópur sem þetta bitnar verst á, það eru hjartasjúklingarnir sem oft er eldra fólk. Þó að hjartasjúkdómar hrjái náttúrlega fólk á öllum aldri er það mjög oft eldra fólk sem er með hina ýmsu hjartasjúkdóma og þetta mismunar sjúkdómum í dag.

Það hefur líka verið bent á það fyrr í umræðunni að þegar þetta kerfi er komið á er enginn hvati til þess að læknar semji. Þeim finnst þetta bara ágætt, hafa bara sína gjaldskrá og þetta gengur allt saman. Þeir fá jafnvel meira út úr þessu, setja bara upp hærra verð. Maður óttast að fleiri sérfræðingastéttir fylgi í kjölfarið.

Það er líka gagnrýnisvert að aðrir læknar geti ekki vísað til hjartalækna eins og t.d. svæfingalæknar. Það hefur komið fram í umræðunni og kom fram í heilbrigðisnefndinni. Lyflæknar og öldrunarlæknar geta t.d. ekki vísað beint til hjartalækna. Við vitum að stýrikerfið sem var til umræðu áður var hugsað til þess að sjúklingarnir fengju þjónustuna á réttum stöðum og grunnþjónustan kæmi fyrst. Menn færu síðan til sérfræðings ef heilsugæslulæknirinn teldi þörf á því en þar var auðvitað gert ráð fyrir að allir þessir læknar væru á samningi. Sá er munurinn.

Undanfarið hafa læknar og fleiri skrifað um þetta ástand í blöð. Sem dæmi má taka skrif hjartalæknis á dögunum í Morgunblaðið sem taldi þetta kerfi vera tvöfalt kerfi. Hann furðaði sig á því að deila milli Tryggingastofnunar og hjartalækna væri látin bitna á þeim sem síst skyldi, þ.e. hjartasjúklingum. Hann benti á ýmislegt af því sem við höfum verið að ræða hérna, hvaða ókostir væru á þessu fyrirkomulagi.

Við sem höfum talað frá stjórnarandstöðunni höfum öll haft verulegar áhyggjur af því að þetta leiði til tvöfalds kerfis og ég vona að gripið verði í taumana áður en það verður orðið víðtækara en nú er. Þá höfum við hrakist inn í það kerfi. Ekki hefur verið tekin meðvituð ákvörðun um að við ætlum að hafa þetta svona, að við ætlum að mismuna sjúklingum eftir efnahag. Allir eru búnir að lýsa því yfir að þeir vilji það ekki en samt erum við að hrekjast út í þetta. Mér finnst það skelfilegt og vonast auðvitað til þess að við lendum ekki í sömu sporum og Bandaríkjamenn, Ástralar, Svisslendingar og fleiri sem hafa komið þessu tvöfalda kerfi upp, kerfi sem bitnar á þeim sem eru verr settir í samfélaginu eins og öldruðum.

Sigurbjörg Siggeirsdóttir, sem hefur mikið skrifað um heilbrigðismál, bendir á það í Morgunblaðinu 8. apríl síðastliðinn að hún óttist að við séum að lenda í þessu tvöfalda kerfi. Ég deili með henni þeim áhyggjum. Hún segir að ef ótti hennar reynist réttur munum við sjá hvaða afleiðingar slíkt tvöfalt kerfi hefur fyrir Íslendinga. Hún bendir t.d. á hvernig Ástralar glíma við ójöfnuð í heilbrigðisþjónustu en ríkisstjórn þeirra greiðir nú árlega meira í niðurgreiðslur á einkaheilbrigðistryggingum en sem nemur samanlögðum niðurgreiðslum til landbúnaðar, námuvinnslu og iðnaðar. Hún bendir líka á Frakkana, sem glíma við þrálátan ójöfnuð í heilbrigðisþjónustunni og verðbólgu á lækningamarkaði, og fleiri dæmi telur hún upp í grein sinni í Morgunblaðinu. Auðvitað hræða þessar ábendingar hennar og það ástand sem ríkir þar sem tvöfalt kerfi er.

Ég vona svo sannarlega að hæstv. ráðherra takist að semja við hjartalækna því þá verður eftirlitið til staðar, læknabréfin verða í lagi og heilbrigðiskerfið verður tryggara. Ef fleiri læknar fylgja í kjölfar hjartalækna erum við í vondum málum. Ég vitnaði áðan í grein hjartalæknis í Morgunblaðinu en þar segir um samningana, með leyfi forseta:

„Samningar stóðu mánuðum saman á seinni hluta síðasta árs og þegar séð varð að samninganefnd TR hafði ekki umboð til breytinga eða lagfæringa á samningum óskaði ég fyrir hönd hjartalækna eftir viðtali við heilbrigðisráðherra. Það viðtal fékkst aldrei þrátt fyrir ítrekaða ósk. Upp úr samningum slitnaði svo í lok árs og því sögðum við hjartalæknar upp samningum.“

Ef það er rétt sem þessi hjartalæknir, Ásgeir Jónsson, segir í Morgunblaðsgrein miðvikudaginn 5. apríl virðist mér illa hafa verið staðið að verki hjá heilbrigðisráðuneytinu og ráðherrum Framsóknarflokksins. Er það ástæðan fyrir því að þeir segja upp samningum, að þeir hafi ekki fengið fund með heilbrigðisráðherra og síðan hafi slitnað upp úr samningum? Þeir hafi ítrekað óskað eftir því að ræða við heilbrigðisráðherra um ástandið? Þarna stendur upp á hæstv. heilbrigðisráðherra og ekki skrýtið að maður hafi efasemdir um að menn hafi lagt sig alla fram um að ná samningum. Annars vegar að þeir hafi ekki viljað tala við hjartalæknana og hins vegar að þeir hafi ekki verið tilbúnir að mætast á miðri leið ef um var að ræða einhverjar 10 eða 15 millj. kr. sem bar á milli — og vera fyrir þann pening búin að hrekjast út í tvöfalt kerfi sem bitnar á þeim sem eru veikir og fátækir.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég á sæti í heilbrigðis- og trygginganefnd og mun fara yfir þetta mál þar. Við þurfum að kalla ýmsa til. Við þurfum að kalla til fulltrúa sjúklingafélaganna sem hafa lýst yfir efasemdum um þessa leið. Við verðum að tala við fulltrúa hjartalækna og marga fleiri. Það er heilmikil vinna eftir í þessu máli. Þó að lagabreytingarnar sem eru hér á skjalinu séu ekki flóknar þá hangir svo margt annað á spýtunni sem þarf að skoða.