132. löggjafarþing — 113. fundur,  3. maí 2006.

Almannatryggingar.

792. mál
[00:42]
Hlusta

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég veit ekki hversu oft ég á að þurfa að segja það. Samfylkingin hefði ekki staðið á bak við valfrjálst stýrikerfi eins og hér birtist (Gripið fram í: Hvernig þá?) sem mismunar fólki eftir efnahag. Við hefðum ekki staðið fyrir slíku kerfi, það er hægt að fullyrða það.

Það er sagt að þessi samningur kosti 25 millj. kr. sem eru miklir peningar. Það væri fróðlegt að vita hvort sú ákvörðun, þ.e. um upphæð sem ákveðið var að verja í þjónustu hjartalækna, kemur frá hæstv. heilbrigðisráðherra eða hæstv. fjármálaráðherra. Kom hann að þessu með einhverjum hætti?

Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur heldur ekki svarað spurningu minni um að það virðist ekki vera neitt meiri stýring í þessu kerfi en í núverandi kerfi í ljósi þess að niðurgreiðslan getur einfaldlega verið minni í lok ársins þegar potturinn er búinn. Þvert á bæði formann heilbrigðisnefndar, sem sagði að þetta kerfi væri neyðarúrræði, og hv. varaformann heilbrigðisnefndar, sem kallar þessa leið tilraun, segir hæstv. heilbrigðisráðherra: Þetta er hvorugt en þetta er nýtt kerfi, miklar breytingar sem m.a. kalla á að við setjum þetta lagafrumvarp til að koma í veg fyrir málaferli. En skoðum hina hagsmunina sem eru í húfi, algera umturnun á hugsun almannatryggingakerfisins þar sem alltaf hefur verið gengið út frá því að fólk hafi aðgang að heilbrigðiskerfinu óháð efnahag og búa ekki til ramma utan um eitthvert annað kerfi eins og hér er verið að gera.

Vegum nú og metum þessa tvenns konar hagsmuni, annars vegar hugsanlega hættu á málaferlum og hins vegar þá hagsmuni sem felast í því að hafa skynsamlegt kerfi sem mismunar fólki ekki eftir efnahag eða eykur jafnvel kostnaðinn þegar á heildina er litið, eins og t.d. forsvarsmenn Landspítalans bentu á. Hugsanlega mun flæði þar aukast.