132. löggjafarþing — 116. fundur,  4. maí 2006.

Þingfrestun.

[20:20]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt:

„Að vér, að tilskildu samþykki Alþingis, veitum forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 132. löggjafarþings, frá 4. maí 2006 til 30. maí 2006.

Gjört í Reykjavík, 4. maí 2006.

Halldór Ásgrímsson, Sólveig Pétursdóttir,

Gunnlaugur Claessen.

________________

Halldór Ásgrímsson.

 

Bréf handhafa valds forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 132. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.