framhaldsskóli í Suðvesturkjördæmi.
Frú forseti. Íbúum Mosfellsbæjar barst blað frá Sjálfstæðisflokknum þar sem stendur skýrt, með leyfi forseta: „Ný skýrsla menntamálaráðherra. Framhaldsskóli í Mosfellsbæ er í fyrsta forgang.“ Ég gat ekki heyrt það greinilega á orðum hæstv. menntamálaráðherra áðan að þetta væri rétt og vil því spyrja: Er rétt að næsti framhaldsskóli á höfuðborgarsvæðinu rísi í Mosfellsbæ?
Talandi um Mosfellsbæ. Hvaða staðsetningu er menn þá að velta fyrir sér, í bænum sjálfum, þ.e. miðsvæðis, á Varmársvæðinu eða er ráðherra að hugsa um bæjarmörkin, þ.e. nær Reykjavík og þá jafnvel rétt fyrir utan Grafarholt eða Grafarvog?