132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

samstarf Vestur-Norðurlanda um markmið í fiskveiðimálum.

297. mál
[11:09]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um samstarf Vestur-Norðurlanda um markmið í fiskveiðimálum gagnvart Evrópusambandinu. Í umfjöllun nefndarinnar voru fengnir gestir til að ræða málið og leitað var umsagna.

Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að efla samstarf Vestur-Norðurlanda í fiskveiðimálum gagnvart Evrópusambandinu. Með ályktun nr. 2/2004 á ársfundi 20.–24. ágúst 2004 samþykkti Vestnorræna ráðið að mælast til þess að ríkisstjórn Íslands og landsstjórnir Færeyja og Grænlands beiti sér fyrir aðgerðum sem hafi þann tilgang að efla samstarf Vestur-Norðurlanda varðandi ýmis úrlausnarefni í tengslum við stefnu í fiskveiðimálum gagnvart Evrópusambandinu.

Utanríkismálanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

(Forseti (JBjart): Forseti biður þingmenn að gefa gott hljóð í þingsal.)

Undir nefndarálitið rita eftirtaldir hv. þingmenn: Halldór Blöndal, formaður nefndarinnar, Magnús Stefánsson, Drífa Hjartardóttir, Jón Gunnarsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.