132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

samstarf vestnorrænna landa í orkumálum.

299. mál
[11:36]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um eflingu samstarfs Vestnorrænna landa í orkumálum. Tillagan var send út til umsagnar og einnig fékk nefndin gesti til fundar við sig til að fara yfir málið.

Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að efla samstarf vestnorrænna landa í orkumálum. Með ályktun nr. 1/2004 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins árið 2004 var skorað á ríkis- og landsstjórnir Vestur-Norðurlanda að efna til samstarfs um orkumál þjóðanna, með áherslu á sjálfbæra nýtingu orkuauðlinda. Jafnframt var þess óskað að árlegri skýrslu yrði skilað um framvindu samvinnunnar.

Utanríkismálanefnd leggur til að tillaga þessi verði samþykkt óbreytt. Að nefndarálitinu standa hv. þingmenn Halldór Blöndal, Össur Skarphéðinsson, Magnús Stefánsson, Drífa Hjartardóttir, Jón Gunnarsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.