132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

stofnun og fjármögnun vestnorrænna rithöfundanámskeiða.

541. mál
[11:38]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Drífa Hjartardóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um að styðja stofnun og fjármögnun vestnorrænna rithöfundanámskeiða.

Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins.

Með tillögunni er lagt til að stjórnvöld á Íslandi styðji fyrir sitt leyti stofnun og fjármögnun vestnorrænna rithöfundanámskeiða.

Með ályktun 1/2005 á ársfundi síðastliðið sumar samþykkti Vestnorræna ráðið að hvetja stjórnvöld á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi til að styðja stofnun og fjármögnun vestnorrænna rithöfundanámskeiða. Eitt meginmarkmið tillögunnar er að styrkja bókmenntir þjóðanna með því að hjálpa hæfileikaríkum höfundum að stíga fyrstu skrefin á rithöfundarbrautinni.

Jón Gunnarsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson og Magnús Stefánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt. Að nefndarálitinu standa Halldór Blöndal, Bjarni Benediktsson, Drífa Hjartardóttir, Guðjón A. Kristjánsson og Jónína Bjartmarz.