132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

samstarf Vestur-Norðurlanda um baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa og umhverfisvernd.

543. mál
[11:53]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Magnús Stefánsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um samstarf Vestur-Norðurlanda í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda. Við umfjöllun nefndarinnar fékk hún á sinn fund gesti og einnig var leitað umsagna frá nokkrum aðilum.

Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að hefja samstarf um að Vestur-Norðurlönd standi saman í fararbroddi í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda. Með ályktun nr. 2/2005 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 22.–24. ágúst 2005 voru stjórnvöld á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi hvött til að hefja samstarf um að Vestur-Norðurlönd verði í fararbroddi í alþjóðlegri baráttu fyrir sjálfbærri nýtingu náttúruauðæfa, umhverfisvernd og notkun umhverfisvænna orkulinda.

Utanríkismálanefnd leggur til að þessi tillaga verði samþykkt óbreytt.

Að þessu nefndaráliti standa hv. þingmenn: Halldór Blöndal, Össur Skarphéðinsson, Magnús Stefánsson, Drífa Hjartardóttir, Jón Gunnarsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.