132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

aukatekjur ríkissjóðs.

403. mál
[14:03]
Hlusta

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður gerir aðallega athugasemdir við gjald fyrir íslenskan ríkisborgararétt þó við séum hér að fjalla um mörg gjöld. En í athugasemdum við frumvarpið kemur skýrt fram að þau gjöld eru eftir þessa hækkun lægst á Íslandi af öllum Norðurlöndunum.

Eftir hækkunina er gjaldið í Danmörku svipað, 11 þús. Í Finnlandi nærri fjórfalt. Í Noregi rúmlega tvöfalt og í Svíþjóð tæplega tvöfalt. Við erum því ekkert að verða dýrari en önnur lönd. Við erum miklu ódýrari hvað þetta varðar. Ég tel að íslenskur ríkisborgararéttur sé þess virði, virkilega, að menn ættu ekki að horfa í það gjald sem tekið er fyrir að veita hann.

Varðandi skattaálögur almennt, þá er það alltaf spurningin um hvaða forsendur menn gefa sér. Þessum útreikningum um skattahækkanir hefur verið mótmælt, menn eru ekki alltaf sammála um forsendur sem gefnar eru fyrir útreikningunum. Ég ætla ekki að fara í það hérna í stuttu andsvari.

En mér sýnist að aðalvandinn varðandi barnabætur, vaxtabætur og skattahækkanir sé gífurleg hækkun launa og bóta, frú forseti. Það er ef til vill mikið vandamál. Kannski ætla sumir að taka á þeim vanda með því að lækka bæði laun og bætur. En mér finnst ekki vera um neinn vanda að ræða. Mér finnst ágætt að laun hafi hækkað svona mikið.