132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

landshlutaverkefni í skógrækt.

555. mál
[15:21]
Hlusta

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Einari Má Sigurðarsyni fyrir góð orð í garð nefndarformanns og nefndarinnar og vil geta þess að á þessu vori hefur tekist að afgreiða öll þau mál sem landbúnaðarnefnd afgreiddi úr nefndinni í mikilli sátt allra nefndarmanna. Vil ég nota þetta tækifæri til að þakka nefndarmönnum í landbúnaðarnefnd fyrir afskaplega gott og mikilvægt starf og þá sátt sem náðst hefur í nefndinni sem er mjög mikilvæg.