132. löggjafarþing — 120. fundur,  2. júní 2006.

varamaður tekur þingsæti.

[10:34]
Hlusta

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 4. þm. Norðvest., Einari K. Guðfinnssyni, dags. 2. júní:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Guðjón Guðmundsson, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

Guðjón Guðmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.