132. löggjafarþing — 120. fundur,  2. júní 2006.

Stofnun íslenskra fræða -- Árnastofnun.

331. mál
[11:41]
Hlusta

Dagný Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Í ljósi þess að í bráðabirgðaákvæðinu kemur fram dagsetningin 1. júní vil ég geta þess að breytingartillaga verður flutt við 3. umr. um að ný dagsetning verði 1. júlí. Er þetta gert í samráði við nefndarmenn í hv. menntamálanefnd og fulltrúa ráðuneytis.