132. löggjafarþing — 120. fundur,  2. júní 2006.

grunnskólar.

447. mál
[18:06]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Þetta er eitt af vitlausu málunum sem ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi Íslendinga þennan veturinn. Þetta er mikið ágreiningsmál og það er ekki einu sinni lyft litla fingri til að reyna að ná sátt um málið eða að finna einhverja lendingu. Málið er lagt fram á þeim tíma þegar heildarendurskoðun grunnskólalaganna er farin af stað. Skoðun mín er sú að með framlagningu þessa máls hafi hæstv. menntamálaráðherra svikið kennara og komið í bakið á þeim eftir sögulegt samkomulag í upphafi þessa árs þegar gert var samkomulag um að vinna saman að því að finna lendingu í styttingu náms til stúdentsprófs. Hæstv. menntamálaráðherra hefði verið maður að meiri hefði hún ákveðið að fara sömu leið með þetta mál. Það gerir hún ekki vegna þess að Sjálfstæðisflokknum er það gríðarlega mikilvægt að koma einkaskólunum inn í lög með þessum hætti þar sem ákveðið er að samkvæmt lögum sé bara opin ávísun á öll sveitarfélög í landinu frá þeim sem dettur í hug að stofna einkaskóla. Boðað er til samkeppni við hina opinberu skóla sem sveitarfélögin hafa yfirtekið og reka, mörg meira af vilja en mætti. Ég vil kalla þetta skemmdarverk af hálfu Sjálfstæðisflokksins og niðurlægingu Framsóknarflokksins að kyngja þessu.

Ég er búin að takast á við hv. formann menntamálanefndar, Sigurð Kára Kristjánsson, um þetta mál. Það var ekki við það komandi að við fengjum málefnalega umræðu um það í nefndinni. Út skyldi það og nú er sömu aðferðum beitt við að reka þetta mál í gegnum þingið í bullandi ágreiningi og með ofbeldi. Ég mótmæli því. Mér finnst það til skammar fyrir Sjálfstæðisflokkinn að leyfa sér vinnubrögð af þessu tagi og mér finnst sorglegt að Framsóknarflokkurinn skuli láta hafa sig út í það að teyma þennan vagn með Sjálfstæðisflokknum.

Hv. þm. Einar Már Sigurðarson fór yfir minnihlutaálit okkar. Við erum að sjálfsögðu með frávísunartillögu við málið og gefum þar með alþingismönnum kost á að vísa málinu til föðurhúsanna. Ég er svo sem ekki bjartsýn á að stjórnarflokkarnir vitkist eða sjái ljósið í þessum efnum áður en af því verður að sú tillaga komi til atkvæða, því miður. En ég held að það hljóti að verða alvarlegur styr úti í samfélaginu og öldur mótmæla um þetta mál ef það fer hér í gegn með þessum hætti.

Það átti enginn von á að þetta væri að gerast. Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti nú á síðustu dögum að sett yrði pressa á að koma þessu mál í gegn í þeim ágreiningi sem það er í og án þess að leita nokkurra sátta. Ágreiningurinn er ekki bara við stjórnmálaflokkana sem eru í stjórnarandstöðu á Alþingi heldur er hann ekki síður við þá sem starfa úti á akrinum og þar vil ég nefna Samband íslenskra sveitarfélaga sérstaklega.

Með umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem dagsett er 28. febrúar 2006, fylgir frásögn af stjórnarfundi sambandsins sem haldinn var 21. október 2005. Þar með fylgir bókun sem gerð var 21. október í tengslum við afgreiðslu stjórnarinnar á umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á grunnskólalögunum. Kemur fram að drögin hafi verið samþykkt með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum Árna Þórs Sigurðssonar og Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur og að þrír hafi setið hjá, þau Elín R. Líndal, Lárus G. Valdimarsson og Þorvaldur Guðmundsson. Árni Þór og Steinunn Valdís lögðu fram bókun á fundinum og fylgir hún með umsögn sambandsins til menntamálanefndar.

Mig langar að vitna til þessarar bókunar Árna Þórs og Steinunnar Valdísar en í henni segir, með leyfi forseta:

„Við getum með engu móti staðið að þeirri umsögn um umrætt frumvarp sem hér er lögð fram. Þó er rétt að taka fram að í umsögninni er vikið að mörgum atriðum í frumvarpinu sem mikilvægt er fyrir sveitarfélögin að koma á framfæri og eiga fyllilega rétt á sér. Í umsögninni er fjallað um eitt djúpstæðasta ágreiningsefni stjórnmálanna í skólamálum með þeim hætti að engin pólitísk sátt getur orðið um það á vettvangi stjórnar sambandsins.

Frumvarp menntamálaráðherra gerir ráð fyrir grundvallarbreytingum á grunnskólalögum hvað varðar rekstur einkaskóla. Til þessa hafa grunnskólalög verið afdráttarlaus um það að einkaskólar eigi ekki kröfu til styrks af almannafé en frumvarpið gerir slíkan styrk nú lögboðinn, fallist sveitarstjórn á stofnun viðkomandi einkaskóla. Við teljum í fyrsta lagi að það sé allsendis óeðlilegt og í mótsögn við almenna stefnu sambandsins um sjálfsforræði sveitarfélaga að fallast á þessa grundvallarbreytingu. Í öðru lagi er ljóst að allt aðrar forsendur en fjárhagslegar eru lagðar til grundvallar þegar fjallað er um hvort samþykkja skuli stofnun einkaskóla. Þar verða faglegar forsendur látnar ráða. Með lagagreininni er því í raun verið að svipta sveitarfélögin fjárhagslegu sjálfstæði hvað þetta atriði varðar. Samband íslenskra sveitarfélaga getur að okkar mati aldrei stutt slíkt, alveg burt séð frá því hvaða stjórnmálaskoðanir stjórnarmenn í sambandinu hafa. Í umsögninni er enn fremur því haldið fram að eðlilegt sé „því að lögbinda að sveitarfélag sem samþykkir stofnun einkarekins grunnskóla skuli jafnframt greiða til hans rekstrarframlag til að styðja eðlilegan rekstrargrundvöll viðkomandi skóla í samræmi við stöðugildi starfsmanna og fjölda nemenda“. Þessu sjónarmiði erum við algjörlega andvíg enda endurspeglar það fyrst og fremst viðhorf þeirra sem mjög leggja áherslu á einkarekna grunnskóla.

Þá ber að mótmæla þeim vinnubrögðum menntamálaráðherra að ráðast í endurskoðun grunnskólalaga án formlegrar aðildar sveitarfélaganna í landinu sem tóku alfarið við rekstri grunnskólans árið 1996.“

Lengra ætla ég ekki að lesa í þessari bókun Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur og Árna Þórs Sigurðssonar en af henni má auðvitað sjá hversu djúpstæður ágreiningurinn er, ekki bara á Alþingi heldur innan stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nú var umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga afar gagnrýnin í þessum efnum. Hún talar að mörgu leyti tæpitungulaust um 23. gr. Ég held að það sé kannski ekki tími eða svigrúm til að fara nánar ofan í þessa umsögn sambandsins sem eðlilegt væri þó að skoðuð yrði gaumgæfilega. Ég hvet þá sem hafa tök á að kynna sér umsögnina því að sambandið telur ýmislegt við þessa leið hæstv. menntamálaráðherra að athuga og gerir grein fyrir því í nokkuð ítarlegu og löngu máli í umsögn sinni.

Ég tek heils hugar undir með hv. þm. Einari Má Sigurðarsyni sem gerði grein fyrir nefndaráliti minni hluta menntamálanefndar og sé ekki annað en að það sé langur vegur í að einhvers konar sátt náist á milli fylkinga í þessu máli. Ég er þeirrar skoðunar að svigrúmið sem við höfum í hinu opinbera skólakerfi sé mikið en kannski megi nýta það betur og gera meira en hingað til hefur verið gert til þess að tryggja að ólíkar skólastefnur og ólíkar uppeldisaðferðir eigi heima innan kerfisins. Ég hef auðvitað sjálf dáðst að ýmsum hugmyndum sem eru í gangi í einkaskólunum sem eru til staðar t.d. í Reykjavík og vil geta þess að Reykjavíkurborg hefur komið verulega til móts við þá einkareknu grunnskóla sem eru til staðar innan borgarmarkanna og hefur verið mörkuð sérstök stefna í þeim efnum. Hins vegar hlýtur að koma til álita að mínu mati að ólíkar uppeldisaðferðir og stefnur geti átt heima í hinu opinbera grunnskólakerfi. Þar eigum við að sameinast um að búa til sveigjanleika, auka möguleika foreldra og barna á að eiga þar val en að gera það með þeim hætti sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera í þessu frumvarpi gengur aldrei upp. Það er ávísun á illindi og það kann ekki góðri lukku að stýra þegar stjórnmálamenn stýra inn í brimskaflinn á þann hátt sem Sjálfstæðisflokkurinn er að gera í þessu máli.