tóbaksvarnir.
Hæstv. forseti. Sú breytingartillaga sem ég og þingmennirnir Sigurður Kári Kristjánsson, Bjarni Benediktsson og Björgvin G. Sigurðsson flytjum gerir ráð fyrir því að farin verði ákveðin millileið miðað við það fortakslausa bann sem frumvarpið felur í sér. Tillagan gerir ráð fyrir því að áfram verði veitingastöðum heimilað að bjóða upp á sérstök afmörkuð rými til reykinga með þeim skilyrðum að þau séu aðgreind frá öðrum rýmum veitingastaða með veggjum eða gleri eða slíku og jafnframt með því skilyrði að ekki sé heimil sala eða afgreiðsla veitinga í þessum rýmum.
Þarna er sem sagt um að ræða verulega þrengingu frá núverandi fyrirkomulagi reyklausra- og reykingasvæða með það að markmiði að vernda starfsfólk fyrir tóbaksreyk gesta en þó skilin eftir heimild til þess að bjóða upp á svona sérstök afmörkuð lokuð rými. Við teljum að það sé mikilvægt að fá þetta í gegn til þess að við göngum ekki lengra en meðalhóf krefst í þessu máli, göngum ekki lengra en nauðsynlegt er til að vernda vinnuverndarsjónarmiðin.