132. löggjafarþing — 121. fundur,  2. júní 2006.

tóbaksvarnir.

388. mál
[21:12]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég er á móti þessu máli eins og það var upprunalega lagt fram. Hins vegar tók nefndin afstöðu til dóms Hæstaréttar og flutti breytingartillögu við lögin sem ég met miklu veigameiri. Ég styð því þetta mál í heild sinni þrátt fyrir að ég styddi ekki upprunalega málið.