132. löggjafarþing — 121. fundur,  2. júní 2006.

lax- og silungsveiði.

607. mál
[23:41]
Hlusta

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það sé mikilvægt að veiðifélögin fái núna að vinna eftir þessari reglu svo hægt sé að meta hvernig þetta gengur. En ég tel það sem kom inn í frumvarpið afar mikilvægt, þ.e. að hægt sé að nota arðskrána þegar um er að ræða 25% af tekjum félagsins þegar um háar upphæðir er að ræða í fjárfestingum. Ég tel það afar mikilvægt. Það er oft þannig að stórir eigendur eru kannski fáir. Áhætta þeirra er meiri þegar verið er að ráðstafa fjármunum en þeirra sem eiga lítilla hagsmuna að gæta. En þetta varð niðurstaðan og ég stend að henni eins og lagt var fyrir.