lax- og silungsveiði.
Frú forseti. Ég vil láta það koma fram að mér finnst að þessi lagasmíð, þetta frumvarp til laga um lax- og silungsveiði sem hér er til 2. umr. vera vel unnið. Með frumvarpinu fylgir mikið af gögnum og álitum sem það er byggt á. Ég vil bara láta í ljós ánægju með hvernig að þessari vinnu hefur verið staðið.
Ég vil árétta þann tón sem er í frumvarpinu um hina samfélagslegu ábyrgð á þessari auðlind, á sjálfbærri nýtingu þeirrar auðlindar sem felst í ám og vötnum sem lögin taka tillit til, á mikilvægi sjálfbærrar nýtingar, og að um hana sé gengið samkvæmt markmiðum um sjálfbæra þróun. Að umgengnin sé samkvæmt sáttmálum og markmiðum um líffræðilegan fjölbreytileika því að mikilvægi hans í ám og vötnum og á vatnasvæðum okkar er líka gríðarlega mikilvægur. Þarna berum við líka mikla ábyrgð.
Þó að komið hafi fram hjá hv. þm. Guðjóni Arnari Kristjánssyni að horfa megi á hina félagslegu ábyrgð og skiptingu arðs út frá ýmsum sjónarmiðum vil ég samt árétta að grunntónninn er hin félagslega ábyrgð. Við vitum að atkvæðisréttur getur verið með ýmsu móti. Hjá Sameinuðu þjóðunum fylgir eitt atkvæði hverri þjóð, hverju landi, þó að þær séu misstórar og misaflmiklar. Lýðræðislegur fjölbreytileiki er því mikilvægur.
Það er eitt sem ég tel að vanti og sé ógert í þessari lagasmíð en það er endurskoðun laga um Fiskræktarsjóð þar sem tryggt hefði verið að þeir sem nú eru að taka mörg fallvötn og vatnasvæði til virkjunar greiddu til sjóðsins eins og eðlilegt er og gert er í nágrannalöndum okkar. Fiskræktarsjóður hefði þurft að fylgja hér með, af því varð ekki en vonandi kemur hann næst, því það er mikilvægt að þeir sem umgangast þessa auðlind taki þátt í rekstrarkostnaði við varðveislu líffræðilegs fjölbreytileika og nýtingu hennar. Þetta eru lokaorð mín, frú forseti.