atvinnuleysistryggingar.
Frú forseti. Þau frumvörp sem við ræðum hér um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir fela í sér verulega réttarbót fyrir atvinnulausa og þá sem eru í atvinnuleit og eru skref í þá átt að búa betur að atvinnulausum. Ekki veitti af því að þessum hópum hefur í allt of langan tíma ekki verið nægilega vel sinnt. Framfærslueyrir þeirra sem eru atvinnulausir er fádæma rýr og ekki hægt að ætlast til að hægt sé að framfleyta sér af því. Það ber því að fagna þessu frumvarpi um atvinnuleysistryggingar þar sem það skref er stigið að taka upp tekjutengdar atvinnuleysisbætur eins og víða þekkist í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Að vísu er það svo að þessar tekjutengdu atvinnuleysisbætur vara einungis í skamman tíma eða þrjá mánuði. Þeir sem eru atvinnulausir lengur eru þá um tíma á grunnbótum og fyrstu tíu dagana, ef ég man rétt, þegar atvinnuleysi hefst áður en kemur að tekjutengdum bótum.
Þetta frumvarp er málamiðlun milli aðila vinnumarkaðarins og er mér kunnugt um að ASÍ lagði áherslu á að ná fram hærra hlutfalli af tekjum en samkomulag varð um og að tekjutengdar bætur mundu vara í lengri tíma. Undir það er vissulega hægt að taka en þetta er engu að síður skref í rétta átt.
Ég ræði fyrst um frumvarpið um atvinnuleysistryggingar en um er að ræða sérstakt frumvarp um hvort mál þó að það sé tekið saman í einu nefndaráliti. Nefndin fjallaði um það mál og fékk marga aðila á sinn fund. Ég held það megi segja að tekist hafi bærileg sátt í nefndinni um frumvarpið. Við fögnum því sérstaklega, að því er varðar þær breytingar sem gerðar voru á frumvarpinu í meðförum nefndarinnar, sem náðist fram um hækkun á lífeyrisgreiðslum í lífeyrissjóð þeirra sem eru atvinnulausir. Sé ég ástæðu til þess, frú forseti, bæði að því er varðar þetta mál og einnig um vinnumarkaðsaðgerðir, að þakka meiri hlutanum og þá formanni nefndarinnar sérstaklega fyrir mjög góða samvinnu í þessum málum báðum. Ég held að bæði þessi mál, sem hafa tekið nokkrum breytingum í hv. félagsmálanefnd, beri það með sér að góð sátt hafi verið um þau og þeim hafi verið stýrt undir öruggri forustu formanns nefndarinnar. Það skilar sér í því að málið hefur tekið breytingum sem bætir það verulega fyrir þá sem eru atvinnulausir.
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þessi frumvörp en vil þó segja að við erum með fyrirvara, ég og hv. þm. Lúðvík Bergvinsson. Fyrirvarar okkar varðandi atvinnuleysistryggingarnar lúta kannski að tvennu. Í fyrsta lagi teljum við að það sé varla verjandi að atvinnulausir séu raunverulega eini hópurinn sem ekki nýtur þess að fá orlofsuppbót eða desemberuppbót eins og aðrir á vinnumarkaði, og ekki bara þeir sem eru á vinnumarkaði heldur lífeyrisþegar líka sem fá 30% af sínum lífeyri í uppbót, bæði í orlof og í desemberuppbót. Við höfum að minnsta kosti tvisvar sinnum látið á það reyna í þinginu að ná þessu fram fyrir atvinnulausa en ekki tekist. Við erum enn að reyna að fá þetta réttlætismál í höfn en það hefur ekki enn tekist. Áhersla verður sannarlega lögð á að það mál komist í höfn þó síðar verði.
Við höfum einnig tekið upp í breytingartillögu okkar á þskj. 1343 þær athugasemdir sem ASÍ gerði sem eru mjög alvarlegar og meiri hlutinn treystir sér ekki til að taka upp. ASÍ gerði alvarlegar athugasemdir við þá ráðagerð að tvöfalda refsingu þess launafólks sem segir starfi sínu lausu án gildra ástæðna. Í fyrsta lagi tekur við 40 daga biðtími eftir bótum og í öðru lagi svipting tekjutengingar sem fram kemur í 32. gr. ASÍ hefur lagt til þá málamiðlun að umræddir dagar dragist frá hinu tekjutengda tímabili en upphefji það ekki með öllu.
Við tökum upp ákvæði í okkar breytingartillögu sem mildar verulega þessa tvöföldu refsingu sem við teljum verulega ósanngjarna. Við teljum fulla ástæðu til að taka undir það sjónarmið sem fram kom hjá ASÍ að hér sé um óeðlilega refsingu að ræða. Við tökum þetta því upp ásamt ákvæðunum um desember- og orlofsuppbót. Þó að við hefðum gjarnan viljað sjá fleiri breytingar á þessum tvennum lögum teljum við að þetta séu algerar lágmarksbreytingar til viðbótar því sem samkomulag náðist um í nefndinni.
Varðandi vinnumarkaðsaðgerðirnar byggist fyrirvari okkar á því að við teljum að það sé of óljóst um fjármögnun á þeim. Fjármagn er undirstaða þess að hægt sé að ná fram vinnumarkaðsaðgerðum sem skili virkilegum árangri. Hér eru lagðar til nýjar áherslur og ný sýn í vinnumarkaðsmálum en það er grundvallaratriði að þeim fylgi fjármagn. Það er að okkar mati of óljóst hvenær þeir fjármunir muni koma. Þegar lögin taka gildi 1. júlí munu þessir fjármunir alla vega ekki koma úr ríkissjóði en við höfum orð fyrir því að það muni verða á haustdögum. Ég tel mjög mikilvægt, sem formaður beitti sér fyrir og kemur inn í nefndarálitið, að nefndin leggur áherslu á að fjármunir til vinnumarkaðsaðgerða komi að meginhluta til úr ríkissjóði eins og reyndar kom fram í skýrslu nefndar um atvinnuleysistryggingar sem skilaði tillögum til félagsmálaráðherra í nóvember 2005. Auðvitað verður grannt fylgst með því, frú forseti, að þessir fjármunir skili sér til þessara vinnumarkaðsaðgerða. Það er enn nokkuð óljóst um hve mikla fjármuni er að tefla í þessu sambandi en í mín eyru hefur verið rætt um 200 millj. kr. Að þessu lýtur okkar fyrirvari.
Ég ætla ekki að taka langan tíma, frú forseti, því það eru mörg mál sem bíða og liðið á nóttina. En ég vil samt leggja áherslu á að við teljum mjög mikilvægt, og tökum undir það sem fram kemur hjá Öryrkjabandalaginu og reyndar einnig hjá Hlutverki, þ.e. samtökum um vinnu- og verkþjálfun fyrir fatlaða, að atvinnumál fatlaðra eins og annarra Íslendinga falli undir þessa löggjöf og falli undir Vinnumálastofnun eins og aðrar vinnumarkaðsaðgerðir fyrir þá sem eru í atvinnuleit. Ég tel að það sé skilningur nefndarinnar, og það er raunar orðað í nefndarálitinu, að svo sé og að því verði markvisst unnið.
Ég sé ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að hafa fleiri orð um þetta mál utan þess að ég vil þakka fyrir það, eins og fram kemur í þessu nefndaráliti og framsögumaður og formaður nefndi, að nefndin tók upp tillögu sem ég hef flutt og lá fyrir félagsmálanefnd, sem er að finna á þskj. 67. Um var að ræða þingsályktunartillögu sem fól í sér að reglubundið yrði könnuð mannaflaþörf og framtíðarhorfur í atvinnugreinum með það að markmiði að meta atvinnumöguleika námsmanna eftir námsleiðum og efla þannig ráðgjöf við nemendur í framhalds- og háskólanámi. Ég hef í áranna rás orðið vör við það hjá nemendum að þeim hefur fundist vanta að slík reglubundin könnun sé gerð á mannaflaþörf og framtíðarþróun og horfur í atvinnugreinum. Það er gert víða í þeim löndum sem við berum okkur saman við til að auðvelda námsmönnum val á námi og námsleið. Þeir horfa auðvitað til þess hvernig framtíðarhorfur eru í hinum ýmsu atvinnugreinum.
Ég tel það því mjög mikilvægt að nefndin tók þetta mál upp þannig að þetta er komið inn í frumvarp. Þetta er þá orðinn lagatexti og er partur af vinnumarkaðsaðgerðum sem ég tel afar mikilvægt. Það kemur einmitt fram í nefndarálitinu að áhersla er lögð á að Vinnumálastofnun leiti eftir samvinnu við Samtök atvinnulífsins, náms- og starfsráðgjafa í háskólanum og félags-, náms- og starfsráðgjafa við uppbyggingu þessa verkefnis. Með því móti verður samvinna við atvinnulífið tryggð og ráðgjöf við nemendur í framhalds- og háskólanámi efld þannig að byggja megi upp samkeppnishæft samfélag hér á landi til frambúðar. Ég er afar þakklát fyrir að nefndin skyldi taka upp tillögu mína sem lá fyrir nefndinni og flytja hana sem breytingartillögu við þetta frumvarp til laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Þetta ákvæði kemur þá strax til framkvæmda samhliða því.
Virðulegi forseti. Ég hef lýst þeim fyrirvörum sem við höfum við þetta mál. Ég hef lýst þeim breytingartillögum sem við leggjum áherslu á að nái fram að ganga. Ég vil rétt í lokin undirstrika góða samvinnu við meiri hlutann í þessum tveimur mikilvægu málum sem skipta verulegu máli fyrir atvinnulausa og þá sem eru í atvinnuleit. Ég er viss um að við erum að stíga framfaraskref í þessum málum þó auðvitað megi betur gera fyrir þessa hópa. En það er vissulega skref í rétta átt sem við hér stígum.