ferðasjóður íþróttafélaga.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um ferðasjóð íþróttafélaga frá hv. menntamálanefnd, allri menntamálanefnd.
Þingsályktunartillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd sem í sitji fulltrúar fjármálaráðherra, menntamálaráðherra, sveitarfélaga, íþróttaforustunnar og íþróttafélaga úr öllum landshlutum, til að gera úttekt á kostnaði við ferðalög íþróttafélaga á viðurkennd mót. Jafnframt setji nefndin fram tillögur um hvort og þá hvernig skuli koma á sérstökum sjóði til að taka þátt í þeim kostnaði, hvernig fjármögnun hans skuli háttað og eftir hvaða reglum skuli úthlutað úr honum. Enn fremur geri nefndin tillögu um hvaða íþróttagreinar gætu fengið framlög úr sjóðnum, meðal annars með tilliti til einstakra landsvæða, aldurshópa og kynja.“
Svo mörg voru þau orð, frú forseti. Þannig hljóðar tillaga til þingsályktunar sem menntamálanefnd öll flytur.
Eins og fram kemur í greinargerðinni byggist þessi þingsályktunartillaga menntamálanefndar á annarri þingsályktunartillögu sem flutt er af þingmönnum flestra flokka um þennan ferðasjóð.
Ekki þarf í sjálfu sér að hafa mörg orð um þessa tillögu. Hún skýrir sig sjálf. Hún gengur út á að koma upp ferðasjóði íþróttafélaga. Það er vitað að ferðalög íþróttafélaga eru þungur baggi og þá ekki síst fyrir félög af landsbyggðinni þegar þau taka þátt í viðurkenndum mótum, svo sem Íslandsmóti. Sum af þessum íþróttafélögum hafa jafnvel rætt um að draga sig út úr Íslandsmóti og telja flutningsmenn að það væri skaði.
Þessi þingsályktunartillaga menntamálanefndar felur það í sér að fram fari sú vinna á vegum menntamálaráðuneytisins í samstarfi við fjármálaráðuneyti, sveitarfélög og íþróttahreyfinguna sjálfa að skilgreina hvaða landsvæða þyrfti að taka tillit til, hvaða aldurshópa, hvaða íþróttagreina og þar fram eftir götunum. Gert er ráð fyrir að tillögur berist Alþingi þannig að það geti tekið afstöðu til þess með hvaða hætti megi styrkja íþróttafélög til að taka þátt í viðurkenndum mótum eins og Íslandsmóti.
Mér er sagt af forsvarsmönnum íþróttahreyfingarinnar að kostnaður hennar vegna ferðalaga sé um og yfir 1 milljarður kr. Bætist það við kostnað vegna ráðningar þjálfara, vegna leikmanna og þar fram eftir götunum. Við vitum að í íþróttafélögum eins og í Vestmannaeyjum, á Akureyri og slíkum stöðum, sem taka þátt í Íslandsmóti, hafa átt sér stað umræður um að hætta þátttöku á Íslandsmóti einfaldlega af þeirri ástæðu að þau hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa undir þeim kröfum sem fylgja afreksíþróttum, ef við getum orðað það þannig, og ræður ferðakostnaður þar úrslitum.
Við sem fluttum upphaflegu þingsályktunartillöguna, þá sem þessi tillaga byggist á, teljum mikilvægt að hið opinbera leiti allra leiða til að jafna þann aðstöðumun sem er milli íþróttafélaga og rökstyðjum það með því að íþróttir hafi mikið forvarnagildi. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hvaða gildi það hefur fyrir bæjarfélag og hvert sveitarfélag að halda uppi öflugu íþróttastarfi, ekki síst með tilliti til æskunnar. En þar að auki má segja hvað varðar íþróttafélög á landsbyggðinni að það eflir samstöðu og samkennd íþróttafélaga að geta tekið þátt í móti eins og Íslandsmóti. Þegar það hefur gerst t.d. að Vestmannaeyingar lenda í úrslitum í bikarkeppni eða á Íslandsmóti kemur í ljós að það er fátt sem eflir jafnmikið samstöðu og gleði heimamanna.
Um þetta hefur verið rætt fram og aftur hér á Alþingi enda er þetta í þriðja sinn sem þessi þingsályktunartillaga er flutt og er það virkilegt fagnaðarefni að hv. menntamálanefnd skuli loksins hafa afgreitt þetta mál.
Ég vil að lokum segja, frú forseti, að þó það komi ekki fram í sjálfum texta þingsályktunartillögunnar þá er það skilningur menntamálanefndar og þeirra sem standa að þessum hugmyndum að menntamálaráðuneytið og þeir sem munu skipa þá nefnd sem um er fjallað í tillögunni muni hraða störfum sínum og ljúka því starfi þannig að Alþingi geti tekið afstöðu til málsins vegna fjárlagagerðar fyrir næsta ár.
Ég ímynda mér að þessu verki verði lokið og hugmyndum skilað til Alþingis ekki seinna en um miðjan október á þessu ári þannig að Alþingi geti tekið afstöðu til þess hvaða upphæðir við erum að ræða um. Fleiri orð þarf í sjálfu sér ekki að hafa um þetta og vísa ég að öðru leyti til þskj. 1195, frú forseti.