132. löggjafarþing — 121. fundur,  3. júní 2006.

Matvælarannsóknir hf.

387. mál
[03:08]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Frú forseti. Hér er á ferðinni mál sem stefnir matvælarannsóknum á Íslandi að mínu viti í mikið óefni. Allt þetta mál hefur verið með mestu ólíkindum frá því að það leit dagsins ljós. Hér er hlutafélagavæðingarglýjan í augum stjórnarliða í hámarki. Hér er troðið á rétti starfsmanna. Tekinn er af starfsmönnum réttur sem þeir eiga samkvæmt kjarasamningum og lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Hér er farið út á þá braut að koma öllum matvælarannsóknum á Íslandi þannig fyrir að stjórnsýslulög og upplýsingalög koma ekki til með að ná yfir þær. Ég tel það vera skandal á þessum tímum þegar við horfum fram á mögulegar katastrófur varðandi matvælaöryggi. Við erum með fuglaflensu einhvers staðar handan við hornið, kúariðu, eiturefni í matvælum og alls kyns óáran getur mögulega stafað af því að ekki sé vel staðið að málum eða ekki sé rétt staðið að málum í þessum efnum.

Það sem ég tel að hér sé neikvæðast af öllu er auðvitað það að ekki er skilin eftir nein rannsóknarstofa í höndum opinberra aðila. Umhverfisstofnun er gert að láta af matvælarannsóknum. Hún á að hafa einhvers konar eftirlitsskyldu að einhverju leyti mjög svo illa skilgreinda og óljósa en fær ekki að reka sína rannsóknarstofu sem hún hefur rekið hingað til.

Það er ástæða til að líta yfir nokkur svör frá forsætisráðuneytinu við spurningum sem upp komu frá umsagnaraðilum í meðferð málsins. Langar mig sérstaklega til að fara yfir í umsögn Umhverfisstofnunar en stofnunin telur mjög mikilvægt að sett verði á stofn öflug opinber eftirlitsrannsóknarstofa sem sinnir forgangs- og öryggisþjónustu fyrir opinbert matvælaeftirlit. Það kann vel að vera að hægt sé að einkavæða hluta af matvælarannsóknum í landinu. En þegar allt er skoðað er út í hött og fáránlegt, að mínu mati, að ekki sé skilinn eftir rannsóknarþáttur í höndum opinberra aðila sem sinni því eftirliti sem Umhverfisstofnun getur um í sinni umsögn. Umhverfisstofnun segir líka í umsögn sinni að ef ætlunin sé að Matvælarannsóknir hf. verði stofnaðar þá leggi Umhverfisstofnun til að rannsóknarstofa Umhverfisstofnunar verði heildstæð og sjálfstæð eining innan Matvælarannsókna hf. sem sinni áfram því hlutverki sem hún hefur hingað til sinnt með miklum ágætum og það hefur enginn í meðferð þessa máls í nefndinni haldið öðru fram en að Umhverfisstofnun hafi sinnt þessu hlutverki sínu af miklum ágætum.

Ekkert markmið kemur fram í þessu lagafrumvarpi um öryggi matvæla eða þjónustu við eftirlitsaðila og hvergi er vikið að öryggi og hagsmunum íslenskra neytenda í frumvarpinu og það er auðvitað alvarlegt. Þegar stjórnmálaflokkar ganga fram af slíku offorsi og án nokkurrar fyrirhyggju eins og hér er gert í þessum málaflokki þá er það alvarlegt. Ég vil benda þingheimi og þjóðinni á það sem hér er í gangi og hér er verið að leiða í lög. Hvergi er vikið að öryggi og hagsmunum íslenskra neytenda í þessu frumvarpi og það er verið að háeffa allar matvælarannsóknir í landinu. Að mati Umhverfisstofnunar væri fullkomlega ótrúverðugt gagnvart almenningi og neytendum að rannsóknarfyrirtæki í hlutaeigu öflugra matvælafyrirtækja annaðist mælingar fyrir eftirlitsstofnanir sem hafi eftirlit með þessum sömu matvælafyrirtækjum. Hvað heitir þetta á mannamáli? Þetta heitir að hér sé verið að bjóða upp á spillingu og mögulega yfirhylmingu vegna hættulegra atvika sem geta átt sér stað í umsýslu með matvæli.

Umhverfisstofnun telur einnig að það dragi úr trúverðugleika eftirlitsmælinga Matvælarannsókna hf. að Samtök atvinnulífsins eigi fulltrúa í stjórn. Að mati Umhverfisstofnunar er ekki hægt að fela áhættugreiningu, þar með talda áhættustjórnun, hlutafélagi sem matvælafyrirtæki eiga hugsanlega eignarhluta í og Umhverfisstofnun leggur til breytingar á frumvarpinu í þá veru til að reyna að forða slysum. En það er ekki farið inn á þá braut sem Umhverfisstofnun leggur til. Menn skella skollaeyrum við þeim varnaðarorðum og ég er algerlega sannfærð um að þetta offors á eftir að koma okkur hraustlega í koll.

Forsætisráðuneytið svarar umkvörtunum eða ábendingum Umhverfisstofnunar á eftirfarandi hátt í bréfi sem dagsett er 4. apríl 2006, með leyfi forseta:

„Það er stefna á alþjóðavísu, m.a. innan ESB, að skilja að annars vegar rannsóknir og hins vegar eftirlit. Matvælarannsóknir hf. munu ekki sinna neinu opinberu eftirliti. Það verður í verkahring stjórnar Matvælarannsókna hf. að skipuleggja innra starf félagsins svo sem rannsóknir og vöktun vegna matvælaöryggis. Sérstök lög eru í gildi um matvæli þar sem meðal annars er kveðið á um öryggi matvæla. Lögð er til breyting á þeim lögum til að tryggja að Umhverfisstofnun hafi ávallt undir höndum tiltækar upplýsingar um niðurstöður úr sýnatökum heilbrigðisnefnda.“

Sem sagt, Umhverfisstofnun á að nægja samkvæmt mati forsætisráðuneytisins að hafa ávallt undir höndum tiltækar upplýsingar um niðurstöður úr sýnatökum heilbrigðisnefnda en enga sjálfstæða rannsóknastofnun. Ég fullyrði það héðan úr þessum stóli að það er ekki hægt fyrir Umhverfisstofnun að sinna sínu hlutverki ef hún hefur eingöngu aðgang að upplýsingum úr rannsóknum sem aðrir hafa gert og þá hagsmunatengdir aðilar. Ég tel því hér vera á ferðinni mikið slys sem ég hef reynt í nefndinni að koma í veg fyrir eða mótmælt og andæft. En allt hefur komið fyrir ekki. Ég veit ekki hvort andóf mitt úr þessum ræðustóli hefur eitthvað meira að segja en ég er þess fýsandi að þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs greiði atkvæði gegn þessu frumvarpi þegar það kemur til atkvæða á morgun.

Það vekur athygli að þau einkafyrirtæki sem starfa á þessum markaði, sem gefa okkur umsagnir, Rannsóknarþjónustan Sýni ehf. og Rannsóknarþjónustan Promat ehf., eru rannsóknarfyrirtæki sem hafa í sjálfu sér ruðst inn í matvælarannsóknir af því þau geta það til þess að brjóta niður, að því er virðist, þennan opinbera rekstur. Við þekkjum öll þá áráttu að allt sem gert sé á vegum opinberra aðila sé vont og það sé um að gera að markaðsvæða allt heila klabbið. En það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að leyfa sér í þeim efnum. Hér er verið að ganga allt of langt. Hér er verið að ganga þvert á ráðleggingar færustu manna og færustu stofnana. Það er með ólíkindum óðagotið og blindan sem framsóknarmenn eru slegnir í þessu efni þegar þeir láta Sjálfstæðisflokkinn enn eina ferðina beygja sig niður í duftið. Mér kemur í hug myndin af Jóakim aðalönd í Andrésblöðunum sem ég skoðaði þegar ég var lítil, hann með dollaramerkið í augunum. Nú eru framsóknarmenn og sjálfstæðismenn með háeffunarmerkið í augunum. Hér er gengið langt út fyrir öll mörk.

Ég nefndi einkafyrirtækin sem gefa okkur umsögn um málið. Ég er ekki að halda því fram að ekki sé hægt að hugsa sér að einkaaðilar hafi ákveðið hlutverk í matvælarannsóknum í landinu. En ekki á þeim nótum eða með því markmiði sem hér er lagt til.

Sýni ehf. telja að frumvarpið tryggi hinu nýja félagi alla kosti þess að vera ríkisstofnun þrátt fyrir að vera gert að hlutafélagi en jafnframt að vera styrkt í samkeppni við einkarekin fyrirtæki. Skil milli rannsókna og prófana eru engan veginn skýr, segir Sýni ehf. í sinni umsögn, í þessu frumvarpi og eðlilegt væri að bjóða út mælingar og prófanir. Og bókhaldslegur aðskilnaður jafngildir ekki fjárhagslegum aðskilnaði að mati Sýnis ehf.

Þarna sjáum við að einkafyrirtækin á markaðnum eru ekki ánægð. Þau eru ekki ánægð með þetta skref og telja það einungis stigið til hálfs. Promat ehf. mótmælir í umsögn sinni styrkjum til öryggisþjónustu á sviði matvælarannsókna. Því er beinlínis mótmælt berum orðum að öryggisþjónusta á sviði matvælarannsókna sé greidd eða styrkt af opinberu fé.

Þetta er mjög alvarlegt og við ættum að taka til greina mörg varnaðarorð umsagnaraðila í stað þess að skella skollaeyrum við þeim á þeim nótum sem gert er.

Iðntæknistofnun telur að tvíþætt hlutverk fyrirtækisins kunni að valda vandamálum í samskiptum þess við fyrirtæki og einstaklinga. Afurðir rannsókna og nýsköpunar fela í sér nýjar aðferðir, vörur, tækni og þess háttar, segir Iðntæknistofnun, sem kallar á eftirlit og úttektir matvælaeftirlits. Gera má ráð fyrir að Matvælarannsóknir hf., í samstarfi við starfandi fyrirtæki eða á eigin vegum, þurfi á úttekt matvælaeftirlits að halda. Þessi hlutverk, segir Iðntæknistofnun, geta ekki farið saman. Innan Norðurlandanna virðist sem skýr skil séu á milli tækni- og þróunarstofnana annars vegar og rannsóknarstofnana sem annast lýðheilsu og matvælaöryggi hins vegar. Slíkt verður auðvitað að vera hér á landi líka. Það er ófært að verið sé að fara þessa leið. Iðntæknistofnun varar mjög eindregið við því að Matvælarannsóknir hf. byggi upp fyrir opinbert fé efnarannsóknarstofu þótt það sé í hlutafélagsformi.

Svo er náttúrlega komið að kostnaðarmálunum. Það er alveg ljóst að verulegur kostnaður er vantalinn hér. Matvælarannsóknir á Keldnaholti telja að kostnaður upp á tugi milljóna sé vantalinn. Þar segja menn að fjárveitingar ríkisins hafi í raun verið 250–300 millj. kr. í stað 213 eins og talað er um í greinargerð með frumvarpinu.

Hér mætti hafa langt mál og vitna til margra umsagna sem mæla gegn því að þessi leið sé farin. Að lokum vil ég einungis nefna umsögn frá BSRB, sem er mjög alvarleg, þar sem skilmerkilega er farið yfir á hvern hátt verið er að ganga á rétt starfsmanna. Ekki bara að ganga á rétt starfsmanna heldur beinlínis að taka af fólki lögboðin réttindi. Það er óforsvaranlegt að stjórnarmeirihlutinn skuli standa að frumvarpi sem fer jafnlangt og þetta með tilliti til réttinda starfsmanna. Á hverri síðu í umsögn frá BSRB eru hávær mótmæli og hvert einasta orð er fullkomlega sannfærandi og dagsatt. Ekkert er að gert hjá stjórnarliðum, menn skella við skollaeyrum. Ég lýsi því hér yfir, frú forseti, að þetta er óforsvaranlegt. Það er ekki hægt að bjóða Alþingi Íslendinga eða þjóðinni og starfsfólki þeirra stofnana sem hér um ræðir þessi vinnubrögð og þessa framkomu.

Þetta er forkastanlegt og við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs munum að sjálfsögðu greiða atkvæði gegn þessari ósvinnu.