Landhelgisgæsla Íslands.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá meiri hluta allsherjarnefndar um frumvarp til laga um Landhelgisgæslu Íslands.
Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á gildandi lögum um ríkisstofnunina Landhelgisgæslu Íslands og er markmiðið með því að skapa nýja umgjörð um starfsemina og tilgreina þau verkefni sem hún sinnir í lögum ásamt því að heimila stofnuninni að gera þjónustusamninga um lögbundin verkefni og semja um að taka að sér ólögbundin verkefni. Á fundum sínum ræddi nefndin fjölþætt hlutverk Landhelgisgæslunnar. Þá ræddi nefndin þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu og varða starfsmannamál. Kom fram að Landhelgisgæslan stæði nú frammi fyrir breyttum aðstæðum með endurnýjun skipa- og flugflota, auk annarra aðstæðna sem kalla á að sveigjanleiki hennar sé sá sami og stofnana ríkisins almennt. Það sjónarmið kom fram að tenging sú við kjarasamninga stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði sem kemur fram í 10. gr. gildandi laga hefði á undanförnum árum valdið erfiðleikum við að ná fram skipulagsbreytingum og hagræðingu hjá Landhelgisgæslunni til jafns við forsendur launabreytinga á almennum markaði. Á móti þessu sjónarmiði kom fram að launatengingar fyrir ákveðnar stéttir í lögum tryggðu viðunandi starfsöryggi og þannig væri jafnframt stuðlað að því að starfsemi stofnunarinnar stæðist gæðakröfur í alþjóðlegum samanburði. Þannig að því sé haldið til haga toguðust þarna á ólík sjónarmið.
Engin lagaákvæði er að finna um launatengingu þeirra hópa ríkisstarfsmanna sem óheimilt er að gera verkfall, fyrir utan almenn viðmið sem finna má í lögum um kjaranefnd og Kjaradóm. Í kjarasamningum þeirra sem óheimilt er að gera verkfall eru oft einhvers konar ákvæði um samanburð á launaþróun annarra hópa hjá ríki. Þau hafa þó orðið vægari með tímanum og ákvæði um úrskurðaraðila eru horfin. Meiri hlutinn er þeirrar skoðunar að það sé óeðlilegt að annar samningsaðila, ríkið, verði bundinn af því sem hefur verið samið um af þriðja aðila. Sérstaklega þegar horft er til þeirrar reynslu sem fengist hefur af ákvæðinu sem leitt hefur til vandkvæða þar sem þriðji aðili hefur samið út frá öðrum rekstrarforsendum en gilda hjá ríkinu.
Þær upplýsingar voru gefnar hjá nefndinni að jafnvel þótt reynt hefði verið að koma til móts við þessa staðreynd með samkomulagi þá hafi í framkvæmd reynst erfitt að fylgja því samkomulagi eftir. En það er vissulega sjónarmið ríkisins. Í því samhengi af hálfu stéttarfélaganna kom fram að samkomulagið hefði gengið ágætlega eftir. Þannig að því sé haldið til haga.
Telur meiri hlutinn að slík ákvæði séu of mikil höft á starfsemi stofnunarinnar þar sem um rekstur stofnana og fyrirtækja í almennum rekstri gilda ekki sömu sjónarmið. Þá telur meiri hlutinn rétt að minna á í þessu sambandi að réttindi þessara starfsmanna jukust verulega árið 1996 þar sem þeir falla frá þeim tíma undir ný lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Um kjaraviðræður við starfsmenn stofnunarinnar mun í framtíðinni fara eftir lögum um opinbera starfsmenn með þeirri undantekningu að kjaraviðræður við þau stéttarfélög sem falla undir lög nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, munu fara fram á grundvelli þeirra laga. Í báðum tilvikum munu kjaraviðræður fara fram án beintengingar við kjarasamninga á hinum almenna markaði — gangi ákvæði frumvarpsins eftir og verði að lögum — þótt ganga megi út frá því að horft verði til þeirra kjara sem þar hefur samist um.
Um ákvæði frumvarpsins sem fjalla í fyrsta lagi um björgunarlaun, í annan stað um refsiákvæði vegna verkfalla en þar teflir meiri hluti nefndarinnar fram breytingartillögu, í þriðja lagi um vopnaburð og um það nýmæli frumvarpsins að heimilt sé að bjóða út eða stofna hlutafélag um flugrekstur, skiparekstur eða tækniþjónustu stofnunarinnar leyfi ég mér að vísa til umfjöllunar í nefndaráliti meiri hluta allsherjarnefndar.
Að lokum vil ég minnast þess að eftir ábendingu frá Flugmálastjórn Íslands beinir nefndin þeim tilmælum til samgönguráðherra að hugað verði að endurskoðun á loftferðalögum þar sem íslensk löggjöf taki eingöngu til borgaralegs flugs og af þeim sökum séu ekki í gildi kröfur um tegundaskírteini loftfara sem starfrækt eru til ríkisflugs. Af hálfu Flugmálastjórnar Íslands var því beint til nefndarinnar hvort ekki væri ástæða til að breyta frumvarpinu af því tilefni. En nefndin vísar álitaefninu áfram til samgönguráðuneytisins sem umrædd umfjöllunarefni heyra undir.
Ég læt þessu þá lokið um þetta nefndarálit meiri hluta allsherjarnefndar. Undir það skrifa auk þess sem hér hefur fylgt nefndarálitinu eftir, Jónína Bjartmarz, Birgir Ármannsson, Kjartan Ólafsson og Sigríður Ingvarsdóttir.