132. löggjafarþing — 122. fundur,  3. júní 2006.

atvinnuleysistryggingar.

742. mál
[10:04]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Með þessu frumvarpi er stigið mikilvægt framfaraskref sem þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs styðja. Frumvarpið er unnið í samvinnu við verkalýðssamtökin í landinu, Alþýðusamband Íslands og BSRB. Í meðförum Alþingis hefur frumvarpið einnig tekið jákvæðum breytingum og ber að þakka þær.

Við styðjum frumvarpið og styðjum þær breytingartillögur sem fram eru komnar og hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir hefur þegar kynnt.