132. löggjafarþing — 122. fundur,  3. júní 2006.

olíugjald og kílómetragjald o.fl.

794. mál
[10:36]
Hlusta

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Ég vil geta þess við þessa atkvæðagreiðslu að meðal þingmanna eru uppi hugmyndir um að flytja breytingartillögur við þessa grein við 3. umr. sem er í vinnslu akkúrat núna. Ég mun greiða atkvæði með greininni eins og hún lítur út núna en boða það hins vegar að flutt verði breytingartillaga við 3. umr. hvað þetta atriði varðar, þ.e. að því er lýtur að björgunarsveitarbílum sérstaklega. Ég tel að með því móti verði komið talsvert til móts við þau sjónarmið sem fram hafa komið af hálfu björgunarsveitanna í þessu máli.