132. löggjafarþing — 122. fundur,  3. júní 2006.

almannatryggingar.

792. mál
[10:54]
Hlusta

Þuríður Backman (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Með frumvarpi þessu er meðal annars verið að skilgreina sjúkratryggingu betur en gert er í núgildandi lögum. Samkvæmt frumvarpinu tekur sjúkratrygging til heilbrigðisþjónustu, samanber lög um heilbrigðisþjónustu, og veitt er á kostnað ríkisins.

(Forseti (RG): Gefa þingmanni hljóð.)

Það getur verið samkvæmt lögum, reglugerðum eða greiðsluþátttöku ríkisins samkvæmt samningum.

Vinstri hreyfingin – grænt framboð styður þessa skilgreiningu. Vinstri hreyfingin – grænt framboð telur mikilvægt að byggja sérfræðiþjónustu lækna á gagnkvæmum samningum og hvetur því ríkisstjórnina til að ganga til samningaviðræðna við hjartalækna hið fyrsta.

Þrátt fyrir jákvæðar umsagnir og athugasemdir um frumvarp þetta er ekki hægt að horfa fram hjá því að breytingartillögurnar eru til komnar og svo samofnar nýlegri reglugerð um endurgreiðslurétt sjúklinga og tilvísunarkerfi til sjálfstætt starfandi hjartalækna sem sagt hafa upp samningum við Tryggingastofnun ríkisins að Vinstri hreyfingin – grænt framboð mun sitja hjá við afgreiðslu málsins.

(Forseti (RG): Það er óróleiki í salnum og forseti óskar eftir því að þingmenn haldi sig í sætum sínum á meðan atkvæðagreiðsla fer fram. Hún gengur þá hraðar fyrir sig og atkvæðagreiðslum lýkur fyrr.)