þingfrestun.
Hv. alþingismenn. Senn lýkur störfum þessa þings og er það mánuði síðar en starfsáætlun þingsins gerði ráð fyrir, enda var gert hlé á fundum þingsins þremur vikum fyrir sveitarstjórnarkosningar. Á þessu þingi hafa verið afgreidd 119 frumvörp sem lög og jafnframt voru samþykktar 27 þingsályktanir. Þó að svo hagi til að stærstur hluti þessara frumvarpa hafi orðið að lögum á seinustu dögum þinghaldsins höfðu þau flest verið til umfjöllunar í nefndum þingsins fyrr á þinginu en lokaafgreiðsla þeirra frestaðist vegna þinghlés í maímánuði.
Það hefur enn sannast síðustu daga að ein vika er langur tími í pólitík. Mál hafa þróast með öðrum hætti en margir ætluðu og þinghaldið orðið styttra en flestir gerðu ráð fyrir er Alþingi kom saman síðastliðinn þriðjudag.
Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, sem stödd er erlendis en kemur til landsins á morgun, hefur beðið mig að flytja þingmönnum og starfsfólki Alþingis kveðjur sínar með þökk fyrir samstarfið á þessu þingi.
Fyrir hönd okkar forsetanna vil ég jafnframt þakka þingmönnum samstarfið og skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki þingsins þakka ég alla aðstoð. Ég óska utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og vænti þess að við hittumst öll heil á ný þegar Alþingi kemur saman í haust.